07.02.1951
Sameinað þing: 39. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 375 í D-deild Alþingistíðinda. (4429)

909. mál, vínveitingaleyfi lögreglustjórans í Reykjavík

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Þegar ég las þessa fyrirspurn, gerði ég ráð fyrir, að bak við hana lægi löngun hjá hv. þm. V-Húnv. til að draga úr áfengisnautn í landinu, en nú, sérstaklega eftir að hafa heyrt hans síðustu ræðu, skilst mér, að allt annað vaki fyrir honum en það. Hann virðist leggja aðaláherzlu á að sakfella vissa menn og fá þá dæmda. Mér skilst, að ef það væri tilgangur hv. þm. að draga úr áfengisnautn í landinu, þá væri reynandi fyrir hann að vita, hvort hann getur ekki haft áhrif á hæstv. fjmrh., sem stjórnar vínsölunni í landinu, bæði innflutningi og útsölu. Mér finnst hæstv. ráðh. hafa víðtækt vald til að stöðva innflutning til landsins, og væri þá ekki rétt að snúa sér til hans og fá á þann hátt minnkaða víndrykkjuna?

En ástæðan hjá hv. þm. virðist vera sú að takmarka vínveitingarnar við það eina hús, sem vínveitingaleyfi hefur í landinu, þ. e. Hótel Borg, ekki til að takmarka vínveitingar almennt, heldur til að hlúa að þeim sérstaka aðila. Þetta er einmitt í samræmi við það, sem fram kom í fjvn., þegar fyrrv. fjmrh. stakk því til fjvn., hvort ekki væri rétt að taka afsláttinn af Hótel Borg, þá var það einmitt fulltrúi Framsfl. í nefndinni, sem einn var á móti því, ekki til að stöðva vínflóðið í landinu, heldur til þess að þessi aðili hefði meiri hagnað af vínsölunni. 8 menn voru á annarri skoðun og spöruðu ríkissjóði þar með 500 þús. kr. árlega, sem fulltrúi Framsfl. vildi halda að þessari stofnun. Þjóðin vill ekki beygja sig undir, að vínveitingar séu einokaðar og bundnar við einn aðila í landinu, en það er ráðh., sem getur minnkað eða stöðvað að meira eða minna leyti alla útsölu, og það ætti þm. að athuga, ef hann vill koma því fram, sem hann talaði um í sinni fyrstu ræðu.