07.02.1951
Sameinað þing: 39. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 378 í D-deild Alþingistíðinda. (4432)
909. mál, vínveitingaleyfi lögreglustjórans í Reykjavík
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Ekki get ég fallizt á þá skoðun, sem hv. 5. þm. Reykv. túlkaði hér áðan, að það teldist ranglátt að framfylgja bókstaf laga. Og ákaflega verður þá undarleg gæzla laga og réttar í landinu, ef það á stundum að vera aðalregla að afgr. mál eftir bókstaf laga og stundum ekki. Mér heyrðist hv. þm. tala um þetta út, frá sjónarmiði veitingahúsa og þá sérstaklega eins veitingahúss. Og grundvallarhugsunin var, að ranglátt væri að meina ýmsum veitingahúsum hér í borginni að hafa vínveitingar um hönd, öðrum en Hótel Borg. En spurningin er sú, hvort ekki þyrfti að breyta l. svo, að allir fái þessi réttindi, eða láta alla sitja að sama rétti og afnema þessi hlunnindi, sem Hótel Borg hefur. En það er augljóst mál, að það er komin á almenningsvínsala til ágóða fyrir samkomuhúsin í Reykjavík. Og nú heyrast fleiri og fleiri raddir um, að það sé nauðsynlegt að afla öðrum veitingahúsum tekna á sama hátt og þegar ákvæði um vínveitingar á Hótel Borg var sett, ekki til þess að fyrirbyggja víndrykkju, heldur til þess að afla því veitingahúsi tekna. En verst felli ég mig við þá skýringu hæstv. dómsmrh., að margítrekað brot eigi að leiða til sýknunar. Og það er ákaflega óhugnanleg tilhugsun, sem ég get ekki fellt mig við, hvort sem það er skoðun hæstv. dómsmrh. eða einhvers annars. Það mun vera til, að 20 ára hefð verki sem lagaheimild, en varla mundi það geta náð til þessa máls, enda vafasamt, hvort framkvæmdin hefur verið sú sama óbreytt s. l. 20 ár. En þeir, sem óska þess, að almenningsvínsala fari fram í landinu, þeir held ég að ættu þá heldur að beita sér fyrir því, að vínsala sé í hverri búð, því að það að heimila vínsölu í hverju veitingahúsi leiðir til staupasölu með margföldu verði og meiri fjárplógsstarfsemi í sambandi við það, og þá er gengið nær þeim vesalingum en annars, sem telja sig þurfa að sæta slíkum viðskiptum.
Mér finnst, þegar um er að ræða sérstaka endurskoðun á áfengislöggjöfinni, þá sé það annað mál. Hér er um að ræða, hvort eigi að halda áfram að loka augunum fyrir þessum vínveitingahætti, sem upp er tekinn og almennur orðinn, eða hvort á að grípa í taumana, þegar eftir þessu hefur verið tekið, og taka upp þann hátt að fara eftir bókstaf laga og reglugerða, sem mér finnst sjálfsagt að gera eigi. Og ég vænti þess, að farið verði eftir bókstaf laga og reglugerðar um þetta, úr því mönnum er ljóst, hvað um þetta gildir.