07.02.1951
Sameinað þing: 39. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 381 í D-deild Alþingistíðinda. (4434)

909. mál, vínveitingaleyfi lögreglustjórans í Reykjavík

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ég er sammála hæstv. dómsmrh., að hér sé um þjóðfélagsvandamál að ræða, og þau eru mörg. Eitt af þeim er það, þegar almenningur og ráðherrar líta svo á, að sjálfsagt sé að brjóta l., og þegar sá hugsunarháttur byrjar að grípa um sig hjá þjóðinni, að það sé mesta ranglæti að hlýða l., og þegar það kemst upp, að sjálfri ríkisstj. finnst ekkert athugavert við það, af því að það er búið að gera það svo lengi. Þá er sannarlega um þjóðfélagsvandamál að ræða. Hæstv. dómsmrh. talar um að kalla hann til saka. Ég veit ekki annað en að undanfarnar ríkisstjórnir hafi séð svo um, að sá dómstóll væri ekki til, sem á að dæma hæstv. ráðh. Svona má telja bunka af l., sem ríkisstj. hafa ekki haldið, bæði þessi l. og önnur. Og nú heyri ég, að henni finnst ekkert athugavert við það. Þetta finnst mér þjóðfélagsvandamál, sem ég veit ekki, hvernig ætti að ráða bót á. En það er nauðsynlegt að hugsa um það að ráða bót á þeim.