31.01.1951
Sameinað þing: 34. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 24 í D-deild Alþingistíðinda. (4461)

131. mál, viðbúnaður vegna ófriðarhættu

Frsm. (Jón Sigurðsson) :

Herra forseti. Allshn. hefur haft þetta mál til athugunar og orðið sammála um að leggja til, að till. verði samþ. með lítilli breyt. Og breyt. felst í því, að þar sem rætt er um birgðir af hjúkrunargögnum, lyfjum og öðrum brýnustu nauðsynjum, þá sé þar nokkru nánar ákveðið, þannig að þessum vörum verði ekki safnað bara á einn einasta stað í landinu, heldur verði þessum birgðum skipt á milli héraða og landshluta með tilliti til samgangna og annarrar aðstöðu. Sem sagt, með þessari breyt. leggur n. til að till. verði samþykkt.