06.02.1951
Sameinað þing: 38. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1560 í B-deild Alþingistíðinda. (455)
Stjórn áburðarverksmiðju
Landbrh. (Hermann Jónasson) :
Herra forseti. Ég held þetta gefi nú ekki tilefni að löngum umræðum. Verksmiðjan er vitanlega eign hinna almennu hluthafa að 2/5 hlutum og ríkisins að 3/5 hlutum. Eignin fer ekki eftir því, hver ábyrgist skuldirnar; það breytir engu um eign á þessu fyrirtæki. Um þetta ætti ekki að þurfa að ræða lengur við jafnglöggan mann og hv. 2. þm. Reykv.
Fram kom einn listi, sem á voru jafnmörg nöfn og menn skyldi kjósa. Samkv. því lýsti forseti yfir, að án atkvgr. væru kjörnir:
Pétur Gunnarsson tilraunastjóri,
Vilhjálmur Þór forstjóri,
Jón Jónsson frá Flateyri, húsasmíðameistari.