19.12.1950
Neðri deild: 45. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1562 í B-deild Alþingistíðinda. (465)

Þinghlé

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Ég mæli fyrir munn allra þingdeildarmanna, er ég þakka jóla og árnaðaróskir forseta til okkar, um leið og ég fyrir okkar hönd óska honum gleðilegra jóla og nýárs með þökk fyrir samstarfið, það sem af er þessu þingi, og vona að sjá hann heilan aftur eftir jólafrí. Ég vil biðja hv. þm. að taka undir þessar óskir mínar með því að rísa úr sætum. — [Dm. risu úr sætum.]