07.03.1951
Sameinað þing: 50. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1566 í B-deild Alþingistíðinda. (476)

Þinglausnir

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Ég vil leyfa mér fyrir hönd okkar þm. að þakka góðar óskir í okkar garð. Enn fremur mæli ég fyrir munn þm. allra, er ég þakka hæstv. forseta góða og röggsamlega fundarstjórn. Ég óska honum góðrar heimferðar og góðrar heimkomu og vona að sjá hann heilan á komandi hausti. Ég vil biðja hv. þm. að taka undir árnaðaróskir mínar með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]