28.02.1951
Sameinað þing: 48. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1511 í B-deild Alþingistíðinda. (48)

Almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagsumræður)

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson) :

Herra forseti. Góðir hlustendur. Ég skal ekki blanda mér í rifrildi þeirra Alþfl.-manna og framsóknarmanna um það, hvorir þeirra séu í raun og veru fúsari eða ófúsari að vinna með íhaldinu, sem þeir svo kalla, eða hvorir þeirra séu einlægari að koma á samningum þeirra á milli. Þetta innbyrðis rifrildi fornvinanna sýnir einungis, hversu lítið ánægjulegt er að vinna með hvorum um sig. En fleira verður að gera en gott þykir, og eins og flokkaskipun er hér á landi, verður þetta samstarf því miður ekki umflúið.

Í umræðum þessum hefur margt einkennilegt komið í ljós, meðal annars það, hversu ólíkum skoðunum menn halda fram eftir því, hvar menn eru staddir. Það er t. d. eftirtektarvert, hversu hv. þm. Hannibal Valdimarsson talar með ólíkum hreim um það hér í þingsölunum, að bónda skuli falið mikilsvert starf í alþjóðar þágu, miðað við það, sem hann mundi tala, ef hann væri vestur í Djúpi að sækjast eftir fylgi hinna kjarnmiklu bænda þar. Það er einnig fullvíst, að sami hv. þm. mundi tala með öðrum hætti um þá staðreynd, að tilkostnaður við dvöl manna erlendis hlýtur að fara eftir verðlagi þar, en ekki hér á landi, ef hann væri í hópi aðstandenda námsmanna erlendis að tala um styrk þeim til handa, en ekki hér á Alþingi að tala um utanríkisþjónustuna. Sjá þó allir, að tvennar gengisbreytingar, sem sé haustið 1949 og veturinn 1950, hljóta að hafa áhrif á kostnað við dvöl sendimanna Íslands erlendis, enda ekki ólíklegt, að laun þeirra í íslenzkum krónum séu há, þegar íhugað er, að kostnaður við dvöl einhleypra námsmanna erlendis er í sumum löndum fullar 50 þús. kr. á ári.

Hér á Alþ. tala hv. Alþfl.-menn um, að stjórnað hafi verið með hagsmuni verzlunarstéttarinnar fyrir augum fyrst og fremst, en uppi í fjárhagsráði samþykkir fulltrúi flokksins hækkun á álagningu vegna þess, að allt of illa hafi verið að þessari stétt búið, enda verður ekki á móti því borið, að svo hefur verið gert.

En það er ekki einungis, að það virðist ráða skoðunum manna, hvar á landinu þeir eru staddir og í hvaða félagsskap, heldur nægir einnig flutningur stóla á milli hér inni í þingsölunum til þess, að menn gerbreyti um skoðanir. Á meðan Alþýðuflokksmenn sátu í ráðherrastólunum, var því t. d. mjög haldið á lofti af þeirra hálfu, hve þinghaldið stæði stutt, þegar í eitt sinn tókst að ljúka því í marzlok. Nú tala þessir sömu menn af mikilli hneykslan um það, hversu þingið hafi dregizt óhæfilega, þegar allar horfur eru þó á því, að þingslit verði um þessi mánaðamót, þ. e. febrúar —marz, eða nær mánuði fyrr en bezt tókst, á meðan Alþfl. veitti stjórninni forustu. — Og sömu mennirnir sem beittu sér fyrir því, meðan þeir sátu í ráðherrastólunum, að hætta að greiða hækkandi kaup samkv. hækkandi vísitölu telja það nú hin örgustu svik við verkalýðinn, að þessi kaupgreiðsluháttur skuli talinn óráðlegur og stefna í beina ófæru.

Við kosningarnar 1949, meðan þeir enn sátu í ráðherrastólunum, töldu Alþfl.-menn það einnig hina mestu höfuðnauðsyn að auka innflutning á neyzluvörum, og gerði hv. þm. Emil Jónsson því þá einkar glögg skil, hversu þarflegt þetta væri. Nú, þegar þessu á að koma í framkvæmd, eru það kölluð bein fjörráð við verkalýðinn, honum talið miklu hollara að fá sífellt hækkað kaup í pappírsseðlum en að fá keyptar nauðþurftir sínar. En að hvaða gagni koma pappírskrónurnar, ef nauðsynjar eru ekki fáanlegar?

Ekki er samræmið meira hjá kommúnistum. Nú talar hv. þm. Brynjólfur Bjarnason um það, að atvinnuvegirnir megi ekki verða einhæfir og byggja verði áburðarverksmiðju margfalda að stærð við það, sem ákveðið hefur verið að fróðustu manna yfirsýn. En hví í ósköpunum beitti hann sér ekki fyrir áburðarverksmiðjunni, meðan hann sat í ráðherrastólnum, í stað þess að verja geipifé til eflingar síldveiða og síldarverksmiðja, einkanlega ef hann vissi þá það, sem hann heldur nú fram, að íslendinga muni það engu, hvorki til né frá, hvort síldin veiðist eða ekki? Og nú telur hv. þm. Brynjólfur Bjarnason það dæmalaust merki óstjórnar, að gera þurfi sérstakar ráðstafanir til hjálpar bátaútveginum, en gleymir því, að það var einmitt eitt síðasta verk hans, meðan hann sat í ráðherrastólnum, að ríkisstj. hljóp undir bagga með bátaútveginum með fiskábyrgðinni frægu í árslok 1946, án þess að kommúnistar vildu ætla einn einasta eyri til þess að greiða hana með. Var þörfin á fiskábyrgð þá að kenna óstjórn Áka Jakobssonar og þeirra félaga, eða komu önnur atriði til?

En það er ekki aðeins, að þessir menn misbjóði skynsemi almennings, með því að skipta alveg um skoðanir eftir því, hvar þeir sjálfir sitja. Þeir ofbjóða einnig dómgreind hans með því að þegja um eða láta eins og engin áhrif hafi staðreyndir, sem allir vita um og sumar hafa úrslitaþýðingu. Sumir tala eins og allur bátaflotinn liggi enn í höfn, þótt stj. hafi tekizt að koma honum út fyrir mörgum vikum. Þá láta þeir sem það hafi engin áhrif fyrir afkomu Íslendinga, að fiskverðið er nú miklu lægra, miðað við þær vörur flestar, sem við þurfum að kaupa að, en áður var, án tillits til allra gengisbreytinga. Þeir láta einnig eins og togaraverkfallið, sem þeir stóðu sjálfir að og bakaði þjóðinni margra milljónatuga tjón, og sú staðreynd, að síldveiðin brást nú í sjötta sinn hrapallegar en nokkru sinni áður, hafi engin áhrif á afkomu landsmanna. Auðvitað vita allir, að þessi atriði valda mestu um fjárhagsörðugleika Íslendinga nú. Verulegur hluti vandamála bátaútvegsins er beinlínis að kenna síldarleysinu, því að stærri bátarnir geta alls ekki borið sig yfirleitt, nema þeir fái mikinn gróða af síldveiðum. Það vita allir, að ef gengisbreytingin hefði ekki verið gerð, væri fyrir löngu allt atvinnulíf Íslendinga stöðvað með öllu. Það vita allir, að þessir menn geta bókstaflega á engin heilleg úrræði — alls engin — bent önnur, hvað þá betri, til að bjarga bátaútveginum en þau, sem ofan á hafa orðið. Þeir gambra að vísu um það að það hefði átt að taka ábyrgð á fiskverðinu. En hvar átti að taka peninga til þess að borga ábyrgðarverðið með? Með skatti á óþarfavörur og óhófseyðslu, sagði einhver hv. þm. En hann gleymdi að geta um, hvaða vörur og hvaða eyðslu hann átti við. Hitt kemur óneitanlega mun léttara niður á almenningi, að heimila álag á vörur, sem hver um sig ræður, hvort hann vill kaupa eða ekki og flestar eru með þeim hætti, að menn geta verið án þeirra að verulegu leyti.

Og er það ekki nóg til að fordæma ábyrgðina eitt skipti fyrir öll, að í skjóli hennar hrakaði vöruvöndun svo gífurlega, að einn aðalörðugleikinn við sölu afurðanna nú er sá, að þessa sjálfsagða atriðis, vöruvöndunarinnar, sem áður var aðalsmerki útflutnings okkar, hefur nú ekki verið gætt?

Nei, það fólk, sem svona talar og hegðar sér, ætti ekki að kenna aðra við íhald og sérréttindi. Það eru einmitt þessir menn, sem vilja útvega sjálfum sér og félögum sínum sérréttindi með því að blekkja almenning og nota blekkingarnar til þess að klifra sjálfir til valda. Heilbrigð gagnrýni er góð og nauðsynleg, en fjandskapur sá, sem þessir menn bera í munn sér, er ekkert annað en fjandskapur þeirra við heilbrigða skynsemi og flótti frá þeirri ábyrgðartilfinningu, sem sumir þessara manna a. m. k. sýna, þegar þeir sjálfir sitja í ráðherrastólunum. Og það er alveg fullvíst, að þeir hv. þm. Hannibal Valdimarsson og Gylfi Þ. Gíslason munu líta heiminn töluvert öðrum augum, ef þeir komast einhvern tíma sjálfir í ráðherrastólana, ekki síður en þeir segja, að Hermann Jónasson hafi gert.

Auðvitað er sú lausn, sem nú hefur verið fundin bátaútveginum til handa, ekki alfullkomin, en ekki hefur verið bent á neina hentari aðferð eins og nú stendur. Auðvitað geta þessar ráðstafanir farið út um þúfur; ef enn verður lagt í tryllt kapphlaup milli kaups og verðlags, er voðinn vís. Því skal ekki að óreyndu trúað, að almenningur láti blekkja sig til þess. Hann á allt of mikið í húfi. Möguleikarnir til að rétta nú hlut sinn við raunverulega, en ekki aðeins að nafninu til, eru meiri að þessu sinni en nokkru sinni áður. Þetta skilja a. m. k. sum verkalýðsfélög, eins og t. d. Vörubílstjórafélagið Þróttur. Á fundi þar í gær vildi enginn — bókstaflega enginn — greiða því atkvæði að segja nú upp samningum og leggja út í harða kaupdeilu eins og horfurnar eru. Það er skiljanlegt, að kommúnistar egni til þessara aðfara. Þeir vilja koma öllu í kaf. Hitt er óskiljanleg stjórnmálablinda, að Alþfl. skuli nú leggja út í kapphlaup við kommúnista, kapphlaup, sem hann hlýtur að tapa. Kommúnistar hljóta alltaf að sigra í marklausum yfirboðum og blekkingum við almenning.

Í stjórnmálunum eiga ýmsir högg í annars garð, og fylkingar riðlast og ganga á víxl eftir atvikum hverju sinni. Slíkt er lífsins gangur, og um það er ekki að fást. Þótt deilt sé um margt, verður samt að hafa það hugfast, sem mestu máli skiptir, en það er mannsæmandi afkoma allra, útrýming og hindrun neyðar og atvinnuleysis. Þetta verður ekki gert með öðrum hætti en að gera atvinnuvegum landsmanna fært að starfa með eðlilegum hætti og haga svo til, að framleiðsla landsmanna sé samkeppnisfær við vörur keppinauta okkar. Um aðferðirnar til þess geta menn deilt, en markinu vilja allir góðviljaðir menn ná.

Það eru kommúnistar einir, sem vilja neyð og vandræði, til þess að greiða fyrir upplausnaráformum sínum. Það eru skemmdaráform þessara manna, sem eru hættulegust, ekki aðeins fyrir efnahag þjóðarinnar, heldur líf hennar og tilveru. Kommúnistar bíða þess með tilhlökkun, að herskarar hins albjóðlega kommúnisma hremmi landið, og ætla síðan að hrifsa völdin í skjóli þessara vina sinna. Þessi staðreynd er nú þýðingarmest í íslenzkum stjórnmálum. Við hinir getum deilt um margt, en gegn þessum voða verðum við allir að sameinast.