14.12.1950
Efri deild: 37. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 136 í B-deild Alþingistíðinda. (545)

124. mál, lífeyrissjóður barnakennara

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ég vildi óska þess, ef þessi athugun kemur til framkvæmda, að þá verði ekki eingöngu athugað, hvað sjóðurinn fær núna, heldur hvað hann fékk frá stofnun og fram til þess að l. var breytt 1944. Hann var búinn að starfa svo lengi þá, að það liggur örugglega fyrir meðaldánartala. Ef það kemur í ljós, að iðgjöldin séu allt of há, þá finnst mér langauðveldast að lækka framlag ríkissjóðs úr 6% í 4%.