16.10.1950
Neðri deild: 3. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 148 í B-deild Alþingistíðinda. (615)

8. mál, gjaldaviðauki 1951

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Gjöld þau, sem hér um ræðir, hafa nú um nokkurt skeið verið innheimt með viðauka, og er með þessu frv. lagt til, að þessi viðauki verði framlengdur. Ég vil því leyfa mér að óska þess, að frv. verði vísað til 2. umr. og fjhn. að lokinni þessari umræðu.