19.10.1950
Neðri deild: 5. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 148 í B-deild Alþingistíðinda. (618)

8. mál, gjaldaviðauki 1951

Frsm. (Skúli Guðmundsson):

Herra forseti. Með þessu frv. er lagt til að framlengja lög, sem gilda í ár og hafa gilt undanfarin ár og verið framlengd frá ári til árs á hverju þingi. Fjhn. hefur athugað frv. og leggur til, að það verði samþ. — Einn nm., hv. 2. þm. Reykv. (EOl), hefur ekki skrifað undir álitið, en mun samt ekki skila séráliti.