13.12.1950
Efri deild: 37. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 151 í B-deild Alþingistíðinda. (629)
8. mál, gjaldaviðauki 1951
Brynjólfur Bjarnason:
Herra forseti. Ég var ekki við, þegar n. afgreiddi þetta mál, þannig að mér kom þetta nokkuð á óvart, eins og ég geri ráð fyrir, að fleiri þm. hafi farið. Hér er um að ræða gífurlega hækkun á þessum gjöldum. Hækkun á c-lið er úr 100% í 140%, hækkun á d-lið er úr 100% í 140%. Mest er þó hækkunin á efni innlendra tollvörutegunda, þar sem álagið hækkar úr 450% í 560%, á gosdrykki úr 550% í 680% og öl úr 600% í 740%. Hér er um stórfellda hækkun að ræða, og hæstv. fjmrh. gerir ráð fyrir, að það muni gefa um 2,5 millj. Sem sagt, mér kom þetta nokkuð á óvart, og satt að segja tel ég það nokkuð óvenjulegt og óviðfelldið að koma fram með svona stórfellda hækkun á gjöldum, ekki sízt þegar þessu er skellt fram án þess að þm. geti athugað sína afstöðu og nál. kemur svo seint fram sem hér. Þetta vil ég biðja hv. þm. að athuga, áður en þeir greiða atkv. um þetta mál. Það liggja fyrir litlar upplýsingar um, hve mikil þörf hafi verið á þessari hækkun, og ekki sízt, hvort ekki hafi verið önnur ráð til að afla fjárins. En ráðh. hefur nú tilkynnt, að þetta sé aðeins byrjunin. Ég vil þá leyfa mér að spyrja, hvort í vændum séu aðrar og tilfinnanlegri hækkanir en þessar hækkanir á vöruskatti og söluskatti, sem eftir upplýsingum hæstv. fjmrh. eiga að færa tæpar 10 millj.
Hæstv. fjmrh. var að tala um aðrar leiðir og þá að hætta að greiða uppbætur á laun. Ég ætla ekki að ræða þá till., því að hún er svo mikil fásinna, þó að hún sé sú leið, sem hæstv. ráðh. vill oftast fara, þegar í óefni er komið. Ég veit varla, hvort hann gerir sér það ljóst, hvað það þýðir, ef allt verðlag er hækkað um 40–50%, og um leið og slíkar hækkanir fara fram, á að hætta að greiða uppbætur á laun. Hæstv. ráðh. hlýtur að geta gert sér það ljóst, hvaða afleiðingar slíkt mundi hafa fyrir þegnana og hvort það mundi vera ódýrast fyrir þjóðfélagið. Ég mun nú ekki ræða frekar um þetta mál nú, en e.t.v. gefst tækifæri til þess síðar, en mín persónulega skoðun er, að þetta frv. eigi að fella.