13.12.1950
Efri deild: 37. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 153 í B-deild Alþingistíðinda. (631)
8. mál, gjaldaviðauki 1951
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Herra forseti. Ég vil aðeins taka það fram út af ræðu hv. 6. landsk., að ég er sammála honum um það, að ekki sé á öðru að byggja fremur en reynslunni um áætlanir fjárl. Og ef það er gert, þá sýnir það sig, að enda þótt tóbaks- og áfengissalan gæfi eitthvað hærri tekjur en áætlað er, þá verða á hinn bóginn tolltekjurnar undir áætlun, og ber þannig að sama brunni.