13.12.1950
Efri deild: 38. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 154 í B-deild Alþingistíðinda. (637)
8. mál, gjaldaviðauki 1951
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Eins og ég gat um áðan við atkvgr., þá tel ég það nauðsynlegt, að ríkisstj. fái heimild til að innheimta gjöld, ef afgreiðsla fjárlaga á að vera hallalaus. Ég tel ekki óeðlilegt að hækka tekjur á fjárlögum. Tel ég einnig eðlilegt að hækka einhver gjöld og er fylgjandi því, þótt ekki sé það skemmtilegt að leggja á nýja skatta. Ég vil benda á, að þeir, sem fylgja því að leggja á fleiri millj. til aukningar á tekjum á launum embættismanna, skapa þetta ástand, og menn geta séð, hvort þetta er ekki hreinasti sandmokstur.