27.10.1950
Efri deild: 10. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 161 í B-deild Alþingistíðinda. (654)
5. mál, tollskrá o.fl.
Frsm. meiri hl. (Bernharð Stefánsson):
Herra forseti. Ég ætla ekki að orðlengja þetta, frekar en hv. 1. landsk. þm. gerði nú. En út af því, sem hann var að tala um, að núverandi örðugleikar stöfuðu af þeirri stjórnarstefnu, sem fylgt hafi verið síðan 1948, þá held ég, að það komi þar fleira til greina. Ég skil nú ekki í því, jafnvel þótt ríkisstjórn Íslands kunni að vera slæm, að þá sé hún svo slæm, að t.d. síldin fælist af þeim ástæðum að koma nálægt landinu. Síldin hefur þá eitthvað meira sálarlíf með einhverjum hætti heldur en álitið hefur verið til þessa, ef það er nú orsökin fyrir síldarleysinu. Og nú vita allir, að síldarleysi undanfarinna ára er ein aðalorsökin til þess, að heildarútflutningur landsmanna hefur minnkað á þessum síðustu árum.
Þar sem hv. þm. talar um, að í árslok 1946 hafi allt verið í himnalagi um fjárhag ríkisins, og þess vegna hefði það verið að kenna þeim, skilst mér, sem síðar hafa stjórnað, að ríkið þarfnast nú meira fjár en áður, þá mætti nú kannske aðeins minna hann á það, að töluverður hluti þeirra útgjalda, sem ríkið hefur síðan orðið að inna af hendi, er vegna löggjafar, sem þá var búið að setja, en ekki var komin fyllilega til framkvæmda í árslok 1946. Ég get minnt hann þar á lög, sem beinlínis heyrðu undir hans stjórnardeild, fræðslulögin nýju. Þau hafa kostað ekki svo lítið fé. En þau voru ekki farin að kosta mikið fé í árslok 1946. En ég tek fram, að ég segi þetta ekki í ádeiluskyni. Ég álít, að fræðslulögin nýju hafi verið á margan hátt til bóta, frá því sem áður var. En þetta sýnir það, að það er ekki stefna allra síðustu ára, sem orsakar, hvernig komið er um fjárhag ríkisins, heldur er það stefna margra ára.