13.12.1950
Efri deild: 38. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 187 í B-deild Alþingistíðinda. (735)

9. mál, tekjuskattsviðauki, lækkun skatts af lágtekjum o.fl.

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Ég held, að þessi afstaða hv. þm. Barð. til dráttarvaxtanna hljóti að vera byggð á alvarlegum misskilningi.

Þegar þau ákvæði voru í l., að draga mætti tekjuskatt og útsvar frá, áður en skattur næsta árs væri á lagður, var það ákvæði í l. til að ýta undir innheimtu á tekju- og eignarskatti og útsvörum, að ef menn hefðu ekki greitt fyrir áramót, þá fengju þeir þessi gjöld ekki dregin frá. Þetta var mjög sterk hvöt til að greiða þessi gjöld, og það verkaði þannig, að gjöldin innheimtust betur en ella, og reyndist það miklu sterkara en það, sem nú er, að mega búast við dráttarvöxtum, ef ekki er greitt á réttum tíma. Svo þegar þessi opinberu gjöld voru ekki lengur frádráttarbær, var það sett í staðinn, að dráttarvextir á tekju- og eignarskatt skyldu vera 1% á mánuði, og þannig var það í mörg ár. Það þótti álitamál, hvort þetta ákvæði væri enn þá í gildi, og til þess að vera viss í sinni sök, þótti rétt, að þetta yrði sett í l. aftur, og er það nánast leiðrétting.

Ég vil taka fram í sambandi við þetta, að ef þessu ákvæði verður breytt, svo að dráttarvextir verði 1/2%, eins og hv. þm. Barð. leggur til, þá hafa menn enga hvöt til að borga tekjuskatt, fyrr en lögtak er yfirvofandi, því að ef menn eiga að borga 6% um árið í dráttarvexti, þá eru það ódýrustu lán, sem menn geta fengið, að láta bíða að borga. Það er ómögulegt að sætta sig við, að þessu verði breytt þannig, að innheimtan verði ómöguleg, en það hlýtur hún að verða með þessu móti. Ég skil vel, að hv. þm. Barð. skuli vilja afnema tekjuskatt, og hefur hann nú lagt fram till. um það fyrir þingið, og þá er skiljanlegt, að hann vilji byrja á að láta sjást, að þessi skattur sé óinnheimtanlegur, og svo verður næsta skrefið að afnema hann. En þeir, sem vilja afnema hann, geta tæplega verið með því, að þessu sé hagað þannig, að skatturinn sé svo gott sem óinnheimtanlegur, því að við vitum það vel, að það er ókleift að koma við lögtaki hjá meginþorra manna fyrir skatti. Það verður að hafa þannig viðurlög, að lögtök teljist til undantekninga, en séu ekki aðalreglan. Ég er sannfærður um, að ef þetta ákvæði verður leitt í l. og þá auðvitað eins um dráttarvexti af útsvörum, þá mundi það gera það að verkum, að hvert einasta bæjarfélag í landinu kæmist í greiðsluþrot á fyrsta ári. Þetta er það mikil hjálp við innheimtuna að hafa þessa dráttarvexti til að hvetja menn til að greiða gjöld sín. Víð þekkjum allir, að menn keppast við að greiða fyrir áramót, fyrst og fremst til þess að fá ekki á sig dráttarvexti. Áður var það til þess, að gjöldin yrðu frádráttarbær. Nú er það til þess að komast hjá dráttarvöxtum. Ég hlýt því að mæla mjög eindregið gegn till. hv. þm. Barð., og ég vil fara þess á leit við hæstv. forseta að láta ekki ganga atkv. um þetta mál nema sem flestir hv. þdm. geti verið viðstaddir til þess að taka afstöðu til þess, hvernig með þetta skuli fara, því að það getur orðið alvarlegt, ef það er meining þingsins að breyta þessu ákvæði og nema dráttarvextina brott, því að það er tæplega hægt að kalla það dráttarvexti, þó menn borgi 6% á ári, því að það eru lægri vextir en bankar taka af skuldum. Það er engin hvöt til að greiða, heldur þvert á móti til að draga að greiða gjöldin til þess að hafa afnot af þeim sem rekstrarfé, ef menn eru þess þurfandi. Ríkið þarf á því að halda, að þetta fé innheimtist fljótt og vel, og sama er að segja um bæjarfélögin.

Ég held, að hv. þm. Barð. hafi ekki athugað sögu þessa máls og hvernig dráttarvextirnir eru til komnir. Það voru miklu harðari viðurlög samkvæmt þeim l., sem fyrr giltu, við því að greiða ekki. Þetta ákvæði er aðeins til að taka af allan vafa, en er alls ekki nýtt. Auk þess sé ég ekki betur en hv. þm. hafi undirritað nál. Ef ég hef hann þar fyrir rangri sök, bið ég hann afsökunar, en ég man ekki eftir, að hann gerði fyrirvara.