13.12.1950
Efri deild: 38. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 188 í B-deild Alþingistíðinda. (736)
9. mál, tekjuskattsviðauki, lækkun skatts af lágtekjum o.fl.
Forseti (BSt):
Út af tilmælum hæstv. fjmrh. að láta ekki fara fram atkvgr. um þetta mál, nema dm. væru almennt viðstaddir, þá gæti verið erfitt að fylgja því. Mér hefur ekki borizt tilkynning frá neinum, að hann sé veikur eða á annan hátt forfallaður. Ég skal þó taka þessi tilmæli til greina á þann veg, að nú í kvöld fari ekki fram atkvgr. nema sem allra flestir þdm. séu viðstaddir.