13.12.1950
Neðri deild: 39. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 194 í B-deild Alþingistíðinda. (759)

10. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Frsm. meiri hl. (Skúli Guðmundsson):

Herra forseti. Meiri hl. fjhn. flytur brtt. á þskj. 369, en í nál. — þskj. 324 — var boðað, að meiri hl. mundi leggja fram brtt. Fyrsta brtt. er ekki efnisbreyting, aðeins umorðun. Í annarri brtt. er lagt til, að bætt verði 3 gr. í frv. Er þar í fyrsta lagi lagt til, að 24. gr. í þeim kafla laganna frá 1948, sem er til framlengingar, verði breytt, og er aðalbreytingin sú, að lagt er til, að söluskattur verði greiddur fjórum sinnum á ári, en hefur hingað til verið greiddur þrisvar á ári. Þessu hefur verið hagað þannig, að þeir, sem hafa átt að greiða þennan skatt, gefa upp söluskattsveltuna þrisvar á ári. Hér er lagt til, að skýrsla um sölu sé afhent eftir hvern ársfjórðung og skatturinn greiddur. Þetta er bæði hentugra fyrir ríkissjóð og fyrir þá, sem greiða skattinn, því að með því að safna skuldum hefur reynzt örðugra að greiða skattinn. Einnig er í þessari grein lagt til, að sett verði ný ákvæði um innheimtu skattsins, og eru þær till. bornar fram í samráði við tollstjóra, sem innheimtir þennan skatt. Þar er m.a. gert ráð fyrir, að hann geti gert ráðstafanir til að stöðva atvinnurekstur, ef dregizt hefur að greiða skattinn fram yfir ákveðinn tíma. B-liður þessarar till. er umorðun á 26. gr. laga frá 1948, en því bætt við, að söluskatti skuli bætt við álagningu á vörurnar. 30. gr. er efnislega óbreytt. 3. brtt. er umorðun á 2. gr., sem verður 5. gr., um gildistöku l., að ákvæði þeirra taki til alls þess söluskatts, sem gjaldkræfur verður eftir gildistöku l. Verði þessar breyt. samþ., breytist greinatala frv. samkv. því. Ég sé ekki ástæðu til að hafa fleiri orð um þær brtt., sem meiri hl. fjhn. flytur.