14.12.1950
Sameinað þing: 26. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 345 í B-deild Alþingistíðinda. (839)

1. mál, fjárlög 1951

Atvmrh. (Ólafur Thors):

Herra forseti. Út af þessum umr. vil ég aðeins taka það fram, að Alþingi verður sjálft að ákveða um það tiltölulega veigalitla atriði, hvenær eldhúsdagsumr. skuli fara fram. Hæstv. forseti hefur rætt þetta mál við mig, og ég ræddi það við báða form. Framsfl., form. flokksins og form. þingflokksins, og töldu þeir báðir, að þetta væri vel ráðið, að fresta eldhúsdagsumræðum. Í þingflokki Sjálfstfl. voru og allir á einu máli um þetta vegna þess, að þegar svona stutt væri til jóla, þá mundu menn almennt ekki hlusta mikið á eldhúsdagsumr., og enn fremur töldum við að þetta væri fremur illa valinn tími til að þm. skeyti skapi sínu hver á öðrum, eins og venja er til við slíkar umr. Held ég svo, að æskilegast sé að hafa þessar umr. ekki lengri, heldur láta atkv. skera úr um þessi afbrigði. Þá geymum við okkur rétt til og getum hlakkað til þess að sýna fram á, hvað ríkisstj. er slæm og hve stjórnarandstaðan hefur verið lin og úrræðalaus. (StJSt: Það verður gagnkvæm tilhlökkun.)