14.12.1950
Sameinað þing: 26. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 346 í B-deild Alþingistíðinda. (842)

1. mál, fjárlög 1951

Frsm. meiri hl. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. Fjvn. hefur, síðan 2. umr. var lokið, athugað allar brtt., sem fram komu við 2. umr. frá einstökum þm., og þá sérstaklega þær brtt., sem teknar voru affur til 3. umr. N. hefur einnig farið yfir öll erindi, sem til hennar hafa borizt eftir 2. umr., og borið undir atkv. Vegna alls þessa hefur n. leyft sér að bera fram allmargar brtt. á þskj. 393, og skal ég nú gera nokkra grein fyrir þeim.

1. brtt. er við 11. gr., að veitt sé til rekstrar vinnuhælis að Kvíabryggju framlag að upphæð 125 þús. kr. Þetta er till. frá hæstv. ríkisstj., og leggur n. til, að þetta verði samþ. Hækkar þá þessi grein um þá upphæð.

2. brtt. er við 13. gr., um að fella niður 20 þús. kr. framlag til Breiðdalsheiðarvegar, en taka upp sömu upphæð til Súgandafjarðarvegar, og um það er 3. brtt. Þetta er gert í samræmi við óskir hv. þm. V-Ísf. og hefur engin áhrif á afgreiðslu fjárl. — 4. brtt. er aðeins leiðrétting, og sama er að segja um 5. og 6. brtt., og hafa þær ekki áhrif á afgreiðslu fjárl. — 7. brtt. er einnig nánast leiðrétting. Hún er um að færa frá Geithellnavegi 25 þús. kr., en taka í þess stað upp nýjan lið, Fagradalsbraut, með sömu upphæð. Þetta er gert samkv. óskum frá hv. þm. S–M., og væntir n., að þetta verði samþ. — 8. brtt. er einnig við 13. gr., um að hækka framlag til vegaviðhalds um 1 millj. kr. samkv. ósk vegamálastjóra og í samráði við hæstv. ríkisstj. Ég minntist á það við 2. umr., að upphæðin í frv. væri of lág. Er þetta viðurkennt, og því er lagt til að hækka þennan lið, eins og segir í brtt. — 9. brtt. er aðeins leiðrétting, sem hefur engin áhrif, og sama er að segja um 10. og 11. brtt. — 12. brtt. er einnig við 13. gr., um að hækka um 100 þús. kr. framlag til kaupa á áhöldum fyrir vitamálastjórnina, og er þetta gert í samráði við hæstv. ríkisstj. — 13. brtt. er aðeins tilfærsla, þannig að framlag til hafnarbóta í Neskaupstað hækkar um 15 þús. kr., en lækkar um 10 þús. kr. á Djúpavogi og um 5 þús. kr. á Mjóafirði. Þetta er aðeins tilfærsla milli hafna innan Suður-Múlasýslu, gerð eftir óskum þm. kjördæmisins, og væntir n., að þetta verði samþ. — 15. brtt. er um að hækka framlag til Grímseyjar úr 4 þús. kr. í 46 þús. kr. Eftir till. vitamálastjóra var framlagið til Grímseyjar sett 4 þús. kr., en nú milli umr. kom oddviti Grímseyjar á fund n. og lagði fram gögn um skemmdir á hafnarmannvirkjum, sem taldar eru stafa af óvandvirkni þeirra, sem byggðu hafnarmannvirkin. Nefndin sendi málið til umsagnar vitamálastjórnarinnar og fékk þaðan skýrslu, sem ber það með sér, að skemmdirnar eru a.m.k. ekki Grímseyingum að kenna, og virðast þær stafa af óvandvirkni þeirra, er gerðu mannvirkin, og sýnist sem það sé viðurkennt af vitamálastjóra. Þetta hefur þrásinnis komið fyrir áður um slík mannvirki, en ég vænti þess, að slíkt verði fyrirbyggt í framtíðinni. Vitamálastjóri hefur svo lagt til, að framlagið verði 46 þús. kr. til viðbótar 50 þús. kr., sem áður eru veittar, en hvort þessar 46 þús. kr. áttu að bætast við hinar upphaflegu 4 þús. kr., varð ekki glöggt séð, en ekki er gert ráð fyrir því, svo að heildarupphæðin er áætluð 46 þús. kr. Í sambandi við þetta vil ég benda á, að það liggja enn þá fyrir óskir frá Bolvíkingum um að bæta tjón, sem talið er vera af sömu orsökum og í Grímsey, þ.e. af óvandvirkni, og hafi þeir, sem unnu að hafnarmannvirkjunum þar, framkvæmt verkið þvert ofan í mótmæli heimamanna, en þetta er þó ekki viðurkennt af vitamálastjóra. Ef allar brtt. n. við 13. gr. verða samþ., hækka útgjöldin á þeirri gr. um 1 millj. 142 þús. kr.

17. brtt., við 14. gr., er um að hækka framlag til íslenzkra námsmanna erlendis um 20 þús. kr., þeirra, sem ekki fá styrk, sem menntamálaráð úthlutar. Til þessa var einnig veitt fé í fyrra, og þessi till. er lögð fram í samráði við hæstv. ríkisstj. Af heildarupphæðinni, 1275 þús. kr., eiga 400 þús. kr. að renna til námsmanna í Ameríku og Sviss, og skal upphæðinni skipt af menntamálaráði í samráði við hæstv. menntmrh. — Þá er í 18. brtt. lagt til að veita 6 þús. kr. til tímaritanna „Menntamál“ og „Heimili og skóli“. Þetta hefur verið svo mörg undanfarin ár, og þótti rétt að halda því nú. — 49. brtt. er um að veita 5 þús. kr. byggingarstyrk til húsmæðraskóla Ingibjargar Jóhannsdóttur á Löngumýri. Þetta hefur einnig verið áður, og þótti sömuleiðis rétt að taka það upp nú. — Ef allar brtt. n. við 14. gr. verða samþ., hækka útgjöldin á þeirri gr. um 241 þús. kr.

20. brtt. er um að hækka framlag vegna samningar íslenzkrar orðabókar um 15 þús. kr., og er það skv. ósk hæstv. menntmrh., og 21. brtt. er um að veita Stúdentaráði Háskóla Íslands 10 þús. kr. vegna stúdentaskipta o. fl. Þessi upphæð hefur verið í fjárl. undanfarin ár, og þótti rétt að hafa svo enn. — 22. brtt. er um að hækka styrk til Þórarins Jónssonar tónskálds úr 5 þús. kr. í 10 þús. krónur. Þessa upphæð þótti rétt að hækka, þar sem fyrir lá, að þessi listamaður mundi ekki hafa á miklu öðru að lifa en þessum styrk, og er þetta þá gert í þeirri von, að þjóðin fái þetta endurgreitt í nýjum listaverkum. — 23. brtt. er um að veita 10 þús. kr. til tónlistarskóla Hafnarfjarðar. Þetta var samþ. í n. fyrir 2. umr., en féll þá niður úr brtt. n. — 24. brtt. n. er um að veita Guðmundi Elíassyni myndhöggvara 6 þús. kr. styrk. Guðmundur stundar nú nám í París, og er hann talinn mjög efnilegur. Hann hefur haft þennan styrk áður, og þótti rétt, að hann héldi honum nú. — 25. brtt. er við annan kostnað á 15. gr. B.VII.2, þ.e. sjómælingar, svo að þær geti haldið áfram. Gert er ráð fyrir að hækka þennan lið um 40 þús. kr., og er það gert í samráði við hæstv. ríkisstj. — Ef allar brtt. n. við 15. gr. verða samþ., hækka útgjöldin á þeirri gr. um 86 þús. kr.

26. brtt. er við 16. gr. og er aðeins leiðrétting á athugasemd. — 27. brtt. er um að veita 2 þús. kr. til fyrirhleðslu á þrem jörðum í Dalasýslu, og þótti rétt að verða við þeirri málaleitun. — 28. brtt. er um að veita 10 þús. kr. til framræslu á löndum ríkisins í Hornafirði. — Um 29. brtt., a-lið, um að veita Jóni Guðbrandssyni 5 þús. kr. styrk til dýralækninganáms, vil ég taka fram, að hæstv. fjmrh. hefur óskað eftir, að hún væri athuguð fyrir lok umr., og skal ég verða við þeirri ósk. Sömuleiðis um b-liðinn, sem er um sams konar styrk til Sverris Markússonar. — 30. brtt. er um að veita til rannsókna á garnaveiki 150 þús. kr., og er þetta í sambandi við sauðfjárveikivarnirnar. Þetta er gert í samráði við hæstv. ríkisstj., og gert er ráð fyrir, að þessi upphæð hverfi, þegar fjárskiptum er lokið alls staðar á landinu. — 31. brtt. er um að hækka framlag vegna tilrauna með nýjar síldveiðiaðferðir úr 350 þús. kr. í 500 þús. kr., og er þetta gert í samráði við hæstv. ríkisstj. Fyrir n. lá ýtarleg skýrsla frá hæstv. atvmrh., þar sem sýnt er fram á, að raunverulega þurfi mun hærri upphæð en hér er lagt til. Það eru miklar vonir bundnar við það, að góður árangur náist af þessum tilraunum, og þykir því rétt að hækka þetta framlag. — 32. brtt. er tekin upp, en hún var flutt af hv. þm. N-Ísf., en hann lagði til, að þessi upphæð yrði tekin inn á 22. gr., heimildagreinina, en n. þótti rétt að taka þetta beint inn í rekstrarútgjöldin, og er því lagt til að taka upp 30 þús. kr. framlag til hlutatryggingasjóðs sjómanna og útvegsmanna í Bolungavík til þess að mæta framlagi þeirra á árunum 1939–44, og vænti ég, að þetta verði lokagreiðsla, og er hér með viðurkennd viðleitni þessara aðila til að vera sjálfbjarga meðan Alþingi gerði ekkert í þessum efnum. — 33. brtt. er um að fella niður tilefnislausa athugasemd, sem staðið hefur af vangá við liðinn um iðnskólabyggingu í Reykjavík undanfarin ár. — Ef allar brtt. n. við 16. gr. verða samþ., hækka útgjöldin á þeirri gr. um 352 þús. kr.

34. brtt. er við 17. gr., um að hækka framlag til vatnsveitna um 50 þús. kr. Þetta er gert í samráði við hæstv. ríkisstj. og til þess að mæta brtt. frá hv. þm. Snæf., sem teknar voru aftur við 2. umr. 35. brtt. er um að taka upp nýjan lið, kostnað við ráðstafanir vegna ófriðarhættu, að upphæð 500 þús. kr. Þótti hæstv. ríkisstj. rétt að hafa þetta ákvæði, og hefur n. fallizt á það. B-liður þessarar brtt. er um að leggja fram 60 þús. kr. til alþjóðaberklaveikivarna, og er það einnig gert í samráði við hæstv. ríkisstj. Ef allar brtt. n. við 17. gr. verða samþ., hækka útgjöldin á þeirri gr. um 610 þús. kr.

36. brtt. er til leiðréttingar á 18. gr. Þar er fellt niður nafnið Einar Straumfjörð, en hækkuð laun til Guðmundar Eggerz og Þorsteins Þorsteinssonar hagstofustjóra og nokkrir nýir liðir teknir inn í samráði við þær stofnanir, sem mennirnir hafa unnið hjá. — Í 37. brtt. er enn fremur gert ráð fyrir að bæta inn nokkrum einstaklingum, einkum ekkjum. Ég vil sérstaklega minnast á Ástu Jaden, sem er tekin samkv. ósk frá einum hv. þm. En eftir upplýsingum frá honum hafa Jadenhjónin haldið uppi mikilli rausn og risnu fyrir Íslendinga. Þótti því rétt að taka þetta inn á gr. sem viðurkenningu á starfi þeirra. — Ef allar brtt. n. við 18. gr. verða samþ., hækkar gr. um 130303,50 kr., þegar dreginn er frá sparnaðurinn við þá niðurfellingu, sem ég lýsti áðan.

Rekstrarhagnaður á fjárl. lækkar um rúmar 2 millj. og 300 þús. kr., ef allar till. n. verða samþ. 38. brtt. er aðeins leiðrétting, — en 39. brtt. er um að taka upp 100 þús. kr. vegna byggingar sementsverksmiðju, og er það gert í samráði við ríkisstj. 40. brtt., við 22. gr., er nýr liður um það að ábyrgjast lán, allt að 3 millj. kr., til greiðslu á eftirstöðvum byggingarkostnaðar þjóðleikhússins, enda verði tekjur byggingarsjóðs þjóðleikhússins veðsettar fyrir lánunum. Þetta er gert samkv. ósk fjmrh., og er ekki talin nein hætta fyrir ríkissjóð, að þetta sé gert, vegna þess að tekjur standa í veði fyrir þessum skuldum og verða látnar ganga til þess að greiða af þeim vexti og afborganir.

Þetta eru þá þær brtt., sem fjvn. ber fram, og vænti ég þess, að þær verði samþ.

Rætt var um það í n. að taka inn þrjú atriði á fjárl., en um það varð ekki samkomulag.

1. atriðið er kostnaður við fjárhagsráð. Það hefur verið á fjárl. áður, og hefur þurft mikið fé til þessarar stofnunar, en fram hafa komið á móti sérstakar tekjur til að mæta útgjöldum. Ráðh. taldi ekki ástæðu til að taka þetta upp nú, vegna breytingar, sem fyrirhuguð er á þessari stofnun.

Þá er það 2. atriðið, sem er um það, hvort ekki ætti að taka þjóðleikhúsið inn á fjárl. Það hefur ekki verið gert nú, og m.a. ekki fengizt um það samkomulag að greiða þau laun, sem búið er að semja um, og fjvn. telur enga heimild hafa verið til að gera þennan samning á þann hátt, sem gert hefur verið, og n. hefur ekki viljað samþ. slíkt með því að taka þetta inn á fjárl., og ég vil óska, að ráðherra athugi, hvort heimild sé til þessa.

3. atriðið er um framkvæmdir af fé brúasjóðs. Samkv. lögum á Alþingi að skipta þessu fé, og væri eðlilegast að taka upp brúasjóðsframlagið á fjárl. og setja síðan inn á fjárl. ákvörðun um skiptingu þess. Þetta hefur ekki verið gert nú, en till. liggja fyrir hjá fjvn. um skiptingu þessa fjár. En þetta hefur ekki verið gert vegna ágreinings í n., heldur vegna óska einstakra nm., en ég álít, að þetta eigi að fara inn á fjárl., og það væri þá einnig samkv. fyrirmælum laganna.

Hæstv. fjmrh. ber hér fram brtt. á þskj. 394, og mun hann þá væntanlega gera grein fyrir þeim sjálfur, en ef allar þessar till. verða samþ., hækkar gjaldahliðin um 630 þús. kr., og hefur þá farið nokkuð af þeim hagstæða greiðslujöfnuði, sem menn hafa gert ráð fyrir, og meira en æskilegt má teljast. — Á frv. var 1 millj. og 500 þús. kr. hagstæður greiðslujöfnuður eftir 2. umr., og er sýnilegt, að alla aðgæzlu þarf að hafa í sambandi við afgreiðslu fjárl., ef hann á ekki allur að fara nú. — Í sambandi við þetta vil ég benda á, að hér er gert ráð fyrir að taka 3 millj. kr. lán, og verður því að áætla tekjur 3 millj. kr. hærri.

Nefndin hefur ekki séð sér fært að taka upp aðrar brtt., sem teknar voru aftur til 3. umr., og mæla með, að þær verði samþ.