14.12.1950
Sameinað þing: 26. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 358 í B-deild Alþingistíðinda. (851)

1. mál, fjárlög 1951

Þorsteinn Þorsteinsson:

Herra forseti. Ég og hv. þm. Dal. eigum eina brtt. á þskj. 402, XV, brtt., sem hljóðar þannig, að til hlutafélagsins Kol vegna jarðborana og annarra rannsókna á kolanámunum að Tindum í Dalasýslu verði lagðar 100 þús. kr., og till. til vara um 50 þús. kr. Þessi till. er einbirni okkar þm. Dal. Við flytjum ekki aðra brtt. við fjárl. Þetta sýnir, hve miklir hófsmenn við erum og kurteisir, að vera ekki að tefja fyrir afgreiðslu fjárlaga með óþarfa till. Ég vil taka fram til skýringar, að á Skarðsströnd eru langmest kolalög hér á landi. Lög þessi virðast ná um mestan hluta Skarðsstrandar og inn í fjöllin, en enginn veit, hve langt þau ná. Kolagæðin hafa verið athuguð, og ber athugununum ekki saman um, hve góð kolin séu. Virðist sem þau séu mismunandi, sumt ágæt kol, önnur lakari, og er mismunandi eftir því, í hvaða lagi þau eru. Lögin eru fleiri en eitt og fleiri en tvö, en ekki búið að rannsaka, hvað þau eru mörg. Geta má þess, að unnin voru kol hjá Skarði í fyrri heimsstyrjöldinni og gafst vel. Á milli Tinda og Skarðs eru kolalög, og var landið kirkjujörð, en var seld ábúanda, en áskilinn námuréttur, og á ríkið þar námu, og er ekki fjarri lagi að athuga kolalögin. Samgöngur þarna virðast allsæmilegar. Bezta höfnin í Dalasýslu er 8–10 km veg í burtu, og yrði ekki dýrt að endurbæta hann. Hjá Tindum liggur náman að sjó, og er ekki ókleift að gera þar útskipunarfært. Við Tinda rennur Búðardalsá, sem er vel fallin til rafvirkjunar, og er hægt að virkja þar 500–800 kw., en það er miklu meira en þarf til námunnar. Nú hefur félagið tryggt sér Tinda til eignar og hafizt handa við að athuga, hve góð og hve mikil kolin eru. Búið er að kosta miklu fé til athugananna, eða nærri 185 þús. kr. Nú s.l. sumar voru leigðir jarðborar hjá íslenzka ríkinu og goldin leiga fyrir þá. Var borað niður að kolalögunum og athugað, hve langt þau náðu og hversu þykk þau væru. Til þessa starfs í sumar var varið um 80–85 þús. kr. Nú er félagið ekki svo fjársterkt, að það geti haldið áfram starfsemi sinni, og leitar því til ríkissjóðs, að hann styrki það að einhverju leyti. Í raun og veru er félagið að vinna verk rannsóknaráðs ríkisins, að athuga auðlegð jarðar. Félagið hefur verið að vinna starf þess, sem á að vera á kostnað ríkisins. Er ekki ósanngjarnt, að þessir áhugamenn fái einhverja aðstoð frá ríkissjóði, þótt ekki væri nema hluti af kostnaðinum. — Varatill. er aðeins 1/4 af kostnaði. — Félagið hefur fengið tvo eða fleiri erlenda námuverkfræðinga til að athuga námur þessar, svo að ekki virðist sem félagið hafi rasað um ráð fram við þessar athuganir. Samt kann að vera, að ekki sé allt haganlega gert. Hér er verið að þreifa sig áfram. Nú þarf fleiri boranir, og treystir félagið sér tæplega til að halda áfram vegna fjárskorts, nema sýnt sé í orði og á borði, að það verði styrkt. Ég get sagt fjvn. til lofs, að hún hefur litið á þetta með velþóknun og viljað gera eitthvað fyrir þetta félag, og fjmrh. litur það einnig hýru auga. En þótt andinn sé reiðubúinn, þá er höndin hikandi við að skrifa lögin á pappírinn. Ég held, að það sé rétt, að þingheimur sýni í verki, að þeim mönnum, sem hefjast handa af eigin rammleik án gróðavonar, verði rétt hjálparhönd, mönnum, sem sýnt hafa, að þeir fara ekki fram með ógætni. Það er styrkur í þessu máli að eiga svo ágæta fjvn. og eiga hauk í horni hjá fjmrh.