14.12.1950
Sameinað þing: 26. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 375 í B-deild Alþingistíðinda. (864)

1. mál, fjárlög 1951

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Ég flyt hér brtt. við fjárlögin. Er hún á þskj. 402, XXVIII. till. þar. Ég legg þar til, að ríkið fái heimild til að verja allt að 100 þús. kr. til jarðakaupa samkv. lögum nr. 64 1941, um jarðakaup ríkisins vegna kauptúna og sjávarþorpa. Ég ber þessa till. fram vegna erindis, sem ég hef fengið frá oddvitanum í Hvammstangahreppi. Þar er svo til háttað, eins og víða annars staðar á landinu, að íbúarnir hafa stuðning af landbúnaði, en þeir þurfa meira landssvæði en þeir nú hafa. Horfur eru á, að hægt sé að fá keypta jörð nálægt kauptúninu, og er það nauðsynlegt fyrir Hvammstangahrepp að fá umráð yfir þessari jörð. — Einhverjir kynnu nú að segja, að hreppurinn sjálfur gæti keypt hana, en því er þá til að svara, að hann hefur ekki fjármagn til þess, því að það mun þurfa að greiða andvirðið um leið og kaupin eru gerð, og lán til slíkra kaupa eru mjög torfengin. Ég get upplýst í þessu sambandi, að hreppsnefndin hefur í undirbúningi vatnsveitu, sem kosta mun mikið fé og gerir það mjög örðugt að leggja út í aðrar framkvæmdir samtímis.

Í þeim lögum, sem vitnað er til, frá 1941, er ríkisstj. heimilað að festa kaup á jörðum, löndum eða lóðum við kauptún eða sjávarþorp, ef vissum skilyrðum er fullnægt, og samkv. lögunum á að leigja hlutaðeigandi hreppum þessar jarðir, lönd eða lóðir með skilmálum, sem ákveðnir eru í lögunum. Ég tel heppilegt að styðja kauptún til að fá varanleg umráð yfir löndum, því að það er mikil þörf á því, að þau fái umráð yfir löndum, til þess að þau geti rekið landbúnað ásamt öðrum atvinnurekstri. Og það er mikið öryggi í því fyrir íbúa kauptúna að geta haft nokkurn búrekstur. Ég flyt þetta sem brtt. við 22. gr., en ekki við 20. gr., vegna þess, að málið er ekki á því stigi, að hægt sé að segja með fullri vissu, hvort hægt sé að fá þessa jörð keypta, en þar sem þetta er ekki fullvíst, þykir mér eðlilegra að setja þetta á heimildagreinina. Það þyrfti auðvitað að gera vissar ráðstafanir heima fyrir, til þess að af kaupunum geti orðið, og geri ég ekki ráð fyrir, að staðið geti á því.

Ég ætla svo ekki að fjölyrða um þetta frekar. Ég biðst afsökunar á því, hvað till. er seint á ferðinni, svo að fjvn. hefur ekki getað litið á hana, en af vissum ástæðum gat ég ekki lagt hana fram fyrr, og vænti ég þess, að málið verði ekki látið gjalda þessa seinleika.