14.12.1950
Efri deild: 39. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 401 í B-deild Alþingistíðinda. (940)
66. mál, skemmtanaskattur
Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):
Herra forseti. Þetta frv. er í raun og veru framlenging á l., sem gilda til næsta nýárs, og er þar engin breyt. á ákvæðunum um skemmtanaskatt. — Fjhn. hefur athugað þetta mál og er sammála um að leggja til, að frv. verði samþ. óbreytt. Þess skal getið, að einn nm., Kristinn Andrésson, sem var varamaður hv. 1. landsk. þm. (BrB), var mættur á fundi fjhn., en er nú vikinn af þingi, og þess vegna vantar undirskrift hans á nál., þar sem aðalmaðurinn, hv. 1. landsk., kunni ekki vel við að skrifa undir það.
Ég hygg, að það verði sammála álit hv. d. eins og n., að það beri að samþ. frv. eins og það liggur fyrir, og vænti ég þess, að það verði gert á þessum fundi.