19.12.1950
Efri deild: 44. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 433 í B-deild Alþingistíðinda. (992)
72. mál, stjórn flugmála
Frsm. minni hl. (Steingrímur Aðalsteinsson):
Herra forseti. Ég gat þess í umr. um málið í dag, að það væru veigalitlar ástæður, sem fram eru færðar af flm. þessa frv. og þeim öðrum, sem mælt hafa með framgangi þess. En það mætti kannske segja undir venjulegum kringumstæðum, að ein ástæða væri þar til nefnd, — að það gæti orðið einhver lítilsháttar sparnaður í stjórn flugmálanna með því að fela einum manni þau störf, sem samkv. núgildandi l. eru falin 2 mönnum, flugmálastjórnina annars vegar og flugvallastjórnina hins vegar. Í frv. er gert ráð fyrir, að embætti flugmálastjóra verði lagt niður og starfið falli undir flugvallastjóra. Ég tel miklu eðlilegra, ef á að gera þessi mál einfaldari og fela þau einum manni, að það sé flugmálastjóri. Það embætti er eldra, og sá, sem hefur gegnt því, hefur, eins og ég drap á í dag, hlotið viðurkenningu fyrir að hafa leyst starfið vel af hendi, þ.e. viðurkenningu aðila, sem um þessa hluti ættu að vera dómbærir.
Ég vil þessa vegna leyfa mér að leggja til, að þessum lítils háttar sparnaði, sem þarna gæti verið um að ræða, sé náð með því að leggja niður embætti flugvallastjóra og leggja starf hans á ný undir flugmálastjóra, eins og áður var. Vil ég því leggja fram skrifl. brtt. við 2. gr. frv., í fyrsta lagi, að upphaf gr. orðist svo: „Ráðherra skipar flugmálastjóra ríkisins“, í stað þess að í frv. segir: „Ráðherra skipar flugvallastjóra ríkisins“. Og til samræmis við þetta, að í stað orðsins „flugvallastjóri“ á þremur öðrum stöðum í gr. komi: flugmálastjóri.
Ég þarf ekki að fara fleiri orðum um þetta. eins og hv. þdm. munu sjá, næst alveg sami árangur hvað sparnaðinn snertir, en aðeins eðlilegri og í meira samræmi við þá venju, sem skapazt hefur, að eldri starfsmaður sé ekki látinn víkja fyrir þeim yngri, ef ekki eru einhverjar alveg sérstakar ástæður fyrir hendi, sem hægt er að taka til greina. En þær tel ég ekki hér fyrir hendi.