14.12.1950
Neðri deild: 40. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 435 í B-deild Alþingistíðinda. (998)
41. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Frsm. (Skúli Guðmundsson):
Herra forseti. Þetta frv. er flutt fyrir hönd hæstv. ríkisstj., og efni þess er það að fella úr gildi 42. gr. í lögum um tekjuskatt og eignarskatt. Í þessari grein er ákvæði um það, að dómsmrh. skipi lögfræðing til að hafa á hendi rannsókn í skattamálum. Þetta mun hafa verið sett í lög 1942. Fjhn. hefur athugað þetta frv. og í nál. á þskj. 362 mælir hún með því, að frv. verði samþ.