05.10.1951
Neðri deild: 4. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 748 í B-deild Alþingistíðinda. (1000)
21. mál, ríkisborgararéttur
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Nokkrar umsóknir hafa borizt um íslenzkan ríkisborgararétt til dómsmrn., og þótti rétt að leggja fram frv. um veitingu slíks réttar. — Við samningu frv. var sú aðferð höfð, að teknir voru þeir menn af norrænum ættum, sem voru giftir íslenzkum konum eða þá ókvæntir og hafa dvalið hér um nokkurt árabil, þannig að sýnt þótti, að þeir væru orðnir tengdir böndum við landið, og hefur ekki verið haldið sig þar við 10 ára frestinn, heldur víkið frá honum.
Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta, en legg til, að málinu verði vísað til 2. umr. og allshn.