19.01.1952
Efri deild: 65. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 772 í B-deild Alþingistíðinda. (1053)
21. mál, ríkisborgararéttur
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Við 2. umr. þessa máls bar ég fram till. til rökst. dagskrár, þess efnis að vísa málinu frá í trausti þess, að ríkisstj. léti endurskoða l. frá 1935, en hún var felld, m.a. vegna þess, að hæstv. dómsmrh. lýsti því yfir, að hann mundi ekki taka við dagskránni, þar sem hann taldi, að hún ætti ekki stoð í stjskr., en núverandi landbrh. er ekki á sömu skoðun. Ég fullyrði, að það sé nauðsynlegt að endurskoða þessi l. Það er rétt, sem hæstv. ráðh. sagði, að það væri vafasamt, eftir hverju ætti að fara í sambandi við veitingu ríkisborgararéttar. Það hafa verið nokkrar meginreglur, sem farið hefur verið eftir, þó að víkið hafi veríð frá þeim að nokkru leyti. Ég get ekki fallizt á þau rök hæstv. ráðh., að þetta stríði á móti stjskr. Ég hef orðið var við það hér, að hún hefur verið teygð á alla vegu. Það er ein sönnunin, að kosningu hefur verið frestað um eitt ár, og hygg ég, að það sé ekki eftir fyrirmælum stjskr. Það stendur einnig í stjskr., að ekkert megi greiða úr ríkissjóði, nema veitt sé til þess heimild á fjárlögum, en nú er það vitað, að 100 millj. kr. hafa verið greiddar án þess að leita heimildar á fjárlögum. Þetta er því ekki sönnun þess, að ekki megi gera endurbætur á þessum l., vegna þess að það stríði á móti stjskr. Ég ætla því nú að bera fram brtt. við frv. sjálft. Ég vil m.a. taka undir það, sem hv. 6. landsk. sagði hér, að ef ekki verður sett í önnur l. skilyrði fyrir nafnabreytingum, verður að taka það upp í hvert skipti, sem þarf ekki, ef það er tekið upp í hin almennu l. Rn. má þá ekki leyfa sér að veita þeim mönnum ríkisborgararétt, sem ekki uppfylla þessi skilyrði, sem ákveðin eru með þessum l. Ég tel, að það séu mörg ákvæði, sem nauðsynlegt er að setja inn í þessi l. Ég vil taka það fram, að ég tel sjálfsagt, að íslenzkar konur, sem misst hafa ríkisborgararéttinn við að giftast erlendum mönnum, en misst þá, fái hann strax aftur, þegar þær æskja þess. Ég tel það vafasamt, að íslenzk kona eigi að missa ríkisborgararéttinn, þegar hún giftist erlendum manni. Þannig er það í Ameríku, að íslenzk kona fær ekki strax ríkisborgararétt, en þegar hún hefur misst hann á Íslandi, þá er hún ættjarðarlaus. Það eru því fleiri atriði en þetta, sem ég tel sjálfsagt að taka til athugunar við samningu þessara l. Ég tel rétt að athuga, hvort ekki væri rétt að veita mönnum ríkisborgararétt fyrir dáðir, sem þeir hafa drýgt. Ég tel það ekki neina goðgá að veita manni eins og Carlsen ríkisborgararétt, ef hann væri búsettur á Íslandi, þó að hann hefði ekki uppfyllt tímatakmarkið. Allt þetta má setja í l. og ber að setja í l.
Ég skal svo ekki frekar ræða um þetta, en leyfi mér að leggja fram till. mína og vænti þess, að hæstv. forseti sjái sér fært að bera hana upp, þó að hin hafi verið felld í gær.