21.01.1952
Neðri deild: 65. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 774 í B-deild Alþingistíðinda. (1062)
21. mál, ríkisborgararéttur
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Ég vil eindregið mælast til þess, að sú nefnd, sem hafði þetta frv. til meðferðar við fyrri umræður þess, taki það til athugunar á ný. Við munum eftir því, að það voru nokkrar deilur hér í hv. deild út af afgreiðslu þess, og því held ég væri réttast að fá það fram, hvort nefndin vildi ekki freista þess að koma málinu í réttlátara horf. Það er sannarlega ekki vansalaust fyrir Alþ. að afgreiða þetta mál eins og nú er komið um það. Ég vildi því mælast til þess, að nefndin kæmi saman á ný og tæki málið til athugunar, og þyrfti það ekki að verða til að tefja málið.