18.12.1951
Neðri deild: 47. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 781 í B-deild Alþingistíðinda. (1110)

38. mál, hámark húsaleigu o. fl.

Frsm. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Ég hefði metið það mest, að allshn. tæki þetta mál til athugunar, þar sem þetta er framhald einnar umr. og um það hefur verið talað, að allshn. tæki það til athugunar. Þetta hefur ekki verið gert enn þá, en það væri ástæða til þess, að n. óskaði eftir fresti til að leita nokkru ýtarlegri upplýsinga í sambandi við þær breyt. á frv., sem samþ. hafa verið í Ed. Hér er um að ræða staðfestingu á brbl. og ákvæði, sem sett voru eftir beiðni frá bæjarstjórn Reykjavíkur. Óskaði bæjarstjórnin þess, að ríkisstj. settí brbl. til að framlengja ákvæði um leiguhúsnæði, sem falla skyldu niður. Það var farið fram á, að þessi lög yrðu látin halda gildi sínu áfram, eins og fram er tekið í grg. fyrir brbl. Hæstv. ríkisstj. setti þessi l. eftir ósk bæjarstjórnarinnar, og þannig fór þetta mál gegnum Nd. En nú hefur Ed. tekið upp í frv. gömlu deilumálin og frestað um eitt ár framkvæmd þeirra, þannig að húsnæðiseigendum sé ekki heimilt að segja upp leigjendum í húsnæði sínu fyrr en vorið 1953; annars kemur þetta til framkvæmda á vori komanda, nema bæjarstjórnin hafi óskað annars. En bæjarstjórn Reykjavíkur hefur ekki óskað eftir því, að gildi þessara ákvæða væri framlengt. Það voru höfð stór orð um það af mörgum, að ef þetta ákvæði væri fellt niður, mundi af því leiða stór vandræði í húsnæðismálum. Það liggur fyrir reynsla um þetta hér í Reykjavík frá s.l. ári, og ef menn nú vilja fara að framlengja þetta ákvæði, þá fyndist mér a.m.k., að hv. d. ætti að fá vitneskju um það, hvað það væri mikið af húsnæðinu í bænum og hvaða vandræði hafa hlotizt af því að fella ákvæði þetta niður. Bæjarstjórn Reykjavíkur lét gera mikla skýrslu um þetta mál, liggur sú skýrsla hjá bæjarstjórninni, og liggja þar fyrir upplýsingar um það, hvort með þessu hafi verið stofnað til þeirra vandræða, sem sumir halda fram. Áður en gengið er til atkvæða í þessu máli, þá ætti n. að kynna sér þessi atriði og upplýsa hv. þm. um þau í sérstakri grg., þannig að menn geti metið, hvaða þýðingu það hefur, að menn megi ekki segja upp húsnæði, þar sem þeir búa ekki sjálfir.

Hv. Alþ. hefur verið gerð grein fyrir því, að borgarstjórinn í Reykjavík hafi sagt, að þessi lög þurfi ekki að framlengja. Sömuleiðis taldi hann ekki rétt að breyta um þá stefnu, sem tekin var hér á síðasta Alþ., því að það er vist, að það risa upp hús, þar sem núna er verið að geta frjálsar byggingar smáíbúða með vissum skilyrðum, og þær munu rísa hér upp á næsta ári, og eins mun verða annars staðar á landinu. Þarna er því ein ástæðan, sem mælir á móti því að breyta frá þeirri stefnu, sem tekin var hér í fyrra.

Því hefur verið haldið fram, að þar sem fyrir þinginu liggur frv. um húsaleigulög, þá sé ekki ástæða til að athuga þetta núna. Ég vil taka það fram, að ég hef ekki enn þá lagt það á mig að lesa þann lagabálk, og flestir hv. þm. vita, að það frv. verður ekki afgr. á þessu þingi. Ég vil fyrir mitt leyti segja, að ég get ekki metið það, hvort þessi rök hv. allshn. Ed. eru veigamikil, að þessi lög verði e.t.v. samþ. n næsta Alþ., 1952, og þess vegna sé ástæða til að fresta þessu.

Þskj. 489 felur í sér till. um að fella niður þá breyt., sem gerð var á frv. í Ed., en ég held, að það hljóti að vera æskilegt fyrir hv. þm., að n. fjalli um efnishliðina á málinu og það sé síðan lagt fyrir Alþ. Ég að minnsta kosti mundi óska eftir því og tel það heppilegustu afgreiðslu málsins.