14.01.1952
Neðri deild: 58. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 796 í B-deild Alþingistíðinda. (1151)

167. mál, fasteignaskattar til sveitarsjóða

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Ég hafði ætlað mér að bera fram sams konar fyrirspurn til hæstv. ríkisstj. og hv. 2. þm. Reykv. hefur nú gert, um það, hvernig hæstv. ríkisstj: geti ætlazt til þess, að bæði þessi frv., það, sem nú er hér til 1. umr., og frv. á þskj. 200, verði samþykkt. Það er augljóst mál, að bæði þessi frv. er ekki hægt að samþ. óbreytt, eins og hv. 2. þm. Reykv. hefur bent á.

En ég vildi bæta nokkrum orðum við þetta. Það, sem ég hef fyrst og fremst að athuga við frv. um endurskoðun fasteignamatsins á þskj. 200, er, að af því mundi leiða hækkaðar opinberar álögur og skatta, bæði til ríkissjóðs og bæjar- og sveitarfélaga, en þessar byrðar eru þegar orðnar mjög þungar. Bæjar- og sveitarfélögin hafa mikla þörf fyrir auknar tekjur, en sama verður ekki sagt um ríkissjóðinn. Það er þetta, sem ég hef við það frv. að athuga. Hins vegar tel ég hitt atriði frv. hafa dregizt allt of lengi, að færa fasteignamatið til samræmis við verðgildi eigna í landinu og færa eignamatið þannig nær sannvirði, svo að ekki væri hægt við skattaframtal að halda stóreignunum skattfrjálsum í skjóli hins ranga fasteignamats.

Frv. þetta miðar að því að færa rétt mat á eignir manna, og er ég því vitanlega samþykkur og tel brýna nauðsyn til þess að gera slíka ráðstöfun. Hins vegar getur þetta frv., sem nú kemur hér fram á Alþ., þýtt það, að það verði ofan á, að Alþ. falli frá því að leiðrétta fasteignamatið, en einungis verði hækkuð þau gjöld, sem miðuð eru við núgildandi fasteignamat, allt að því fimmfalt og bæjar- og sveitarsjóðir afli sér aukinna tekna á þann hátt. Ef þetta frv. á að tákna það, að þessi stefna hafi orðið ofan á, þá virðist mér sem svo sé, að sú leið sé valin, sem lakari er. Um þetta vildi ég óska upplýsinga.