18.01.1952
Neðri deild: 62. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 801 í B-deild Alþingistíðinda. (1160)
167. mál, fasteignaskattar til sveitarsjóða
Jónas Rafnar:
Herra forseti. Eins og hæstv. forsrh. tók fram við 1. umr. þessa máls, þá er þetta frv. flutt eftir beiðni, sem kom frá bæjarstjórn Akureyrar. Það munu aðallega tvær ástæður liggja að baki þessari beiðni. Í fyrsta lagi sú ástæða, að þegar bæjarstjórnin fór að vinna að fjárhagsáætlun bæjarins fyrir þetta ár, kom í ljós, að erfitt mundi vera að afgreiða hana án þess að hækka útsvörin til muna, enda kom það á daginn, að útsvörin þyrftu að hækka um 1–2 millj. kr., til þess að hægt væri að láta gjöld og tekjur standast á. Í öðru lagi var ástæðan sú, að tekjur bæjarins af ýmiss konar fasteignum höfðu ekki aukizt þrátt fyrir mikla hækkun á flestum öðrum sviðum. Þessar tekjur af fasteignum eru aðallega samkv. l. frá 1945 og fasteignaskattur samkv. l. frá 1947. Enn fremur hefur bærinn haft nokkrar tekjur af afgjöldum lóða og erfðafestulanda, og eru þessi gjöld miðuð við fasteignamat, og munu þau vera 4% á Akureyri núna. Tekjur bæjarins vegna fasteignaskatts munu áætlaðar 300 þús. kr. næsta ár, og tekjur af lóðum og erfðafestulöndum 250 þús. kr. Í þessu sambandi er fróðlegt að athuga það, að bein útgjöld bæjarins vegna lóða og erfðafestulanda eru nú áætluð 360 þús. kr. á næsta ári, þannig að tekjurnar af þessum eignum hrökkva engan veginn fyrir gjöldunum vegna þeirra. Það virðist því sanngjarnt og rétt að koma þarna jafnvægi á.
Ég sé ekki ástæðu til að fara mörgum orðum um þetta frv. Ég vildi aðeins taka það fram, að þegar gengið var frá fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir næsta ár, var samþ. af bæjarstjórninni að reyna að fá heimild til að hækka gjöld af fasteignum og ef sú heimild fengist, mundu útsvörin geta lækkað um þá upphæð, sem bærinn mundi fá vegna aukinna tekna af fasteignunum. Ég sé ekki ástæðu fyrir hv. þm. að setja sig á móti þessu frv., þar sem hér er líka aðeins um heimildarlög að ræða, og er sveitarfélögunum í sjálfsvald sett, hvort þau nota þessa heimild eða ekki. Ég vænti þess því, að þetta frv. fái samþykki hv. þingmanna.