19.01.1952
Neðri deild: 64. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 804 í B-deild Alþingistíðinda. (1169)

167. mál, fasteignaskattar til sveitarsjóða

Jónas Rafnar:

Herra forseti. Ég gat þess í gær, að tvær ástæður væru til þess, að bæjarstjórn Akureyrar hefði farið fram á þessa heimild. Annars vegar kom það í ljós, þegar afgr. átti fjárhagsáætlun bæjarins, að hækka þyrfti útsvörin um 2 millj. kr., ef ná ætti jöfnuði, hins vegar hafa tekjur bæjarins af fasteignaskatti verið óbreyttar árum saman. Í ár eru tekjur bæjarins af lóðum og erfðafestulöndum áætlaðar 150 þús. kr., en kostnaður af þessum eignum nemur fyrir bæinn 360 þús. kr.

Hv. 2. þm. Reykv. andmælti þessari leið, þar sem með þessu væri verið að þyngja skattana, sem þegar væru nægilega háir. En það var ætlun bæjarstjórnarinnar, að útsvörin lækkuðu sem svaraði þessum auknu gjöldum af lóðum og erfðafestulöndum.

Ég býst við, að Akureyringar séu ekki sérstaklega á móti till. hv. 2. þm. Reykv., en ég get ekki verið með henni. Ég tel, að hagur sveitarfélaganna sé þannig, að ástæða sé til þess, að þau fái þessar tekjur. Eftir reynslu undanfarinna ára er varla hægt að gera ráð fyrir því, að hagur Akureyrarbæjar sé verri en annarra bæjarfélaga, svo að hann þurfi sérstaklega þessar tekjur. Ég álít, að önnur bæjarfélög þurfi einnig þennan tekjustofn, og er því á móti till. hv. 2. þm. Reykv. og vil, að hún verði felld.