22.01.1952
Efri deild: 68. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 809 í B-deild Alþingistíðinda. (1181)

167. mál, fasteignaskattar til sveitarsjóða

Frsm. meiri hl. (Karl Kristjánsson):

Herra forseti. Hv. þm. Barð. gerði hér grein fyrir afstöðu minni hl., og rök þau, er hann flutti, hagga engu. Hann taldi, að það hefði átt að leita álits fasteignaeigendafélagsins í þessu efni. Það mundi hafa álíka þýðingu og hefði átt að leita álits prestanna um fækkun presta. Auðvitað mundi fasteignaeigendafélagið mæla á móti. Það er ekki nema mannlegt, þótt fasteignaeigendur vilji komast hjá því að greiða þessi gjöld. Það hefur og sýnt sig, að allir hafa viljað koma sínu í fasteignir, af því að skattplógurinn hefur rist þar grynnst.

Hv. þingm. Barð. sagði, að það væri takmarkið að jafna niður útsvörunum eftir efnum og ástæðum, þannig að þeir, sem eignir eiga, beri þyngri útsvör en hinir. Þetta er alveg rétt. En þeir, sem hafa komið sínu í eignir, hafa átt hægara með að komast hjá ýmsum sköttum en hinir.

Hv. þm. Barð. minntist á það, að engin trygging væri fyrir því, að þetta kæmi jafnt niður á alla, og er það að vísu rétt. En hvar er sú fullkomna trygging í skattamálum? Þar er aðeins um að ræða, hvað er skást eða kemst næst því að gera öllum jafnt undir höfði eftir efnum og ástæðum. Þá taldi hann það til galla, að með þessu yrði mikið ósamræmi í álagningu hinna ýmsu sveitarfélaga. Þetta er rétt, því að hér er aðeins um heimild að ræða, sem má nota, og tel ég eðlilegt, að ósamræmi verði, þar sem aðstaða er mjög ólík. Skipting landsins í sveitarfélög grundvallast á því, að svo megi vera. Þau eru sérstakar hagsmunaheildir.

Í sambandi við það, hvort rétt muni vera að undanskilja vatnsveltugjöld, þá vil ég taka fram, að ég tel rétt, að það sé gert, vegna þess, að þær starfa samkv. reglugerðum, sem félmrn.

þarf að staðfesta, svo að rekstur þeirra fer fram undir eftirliti þess.

Hv. 1. þm. N–M. gerði fyrirspurn út af því, hvað væri önnur gjöld. Ég játa, að þetta er ekki skýrt, en það er t.d. ræsagjöld og stéttagjöld o.s.frv.

Hv. þm. Vestm. gerði grein fyrir sinni till., sem hann taldi að væri til þess flutt að leggja nokkrar hömlur á, að sveitarstjórnir gengju of langt í því að heimta gjöld af sveitarbúum. Hann sagði, að sér skildist, að þessi till. mætti ekki verða til þess að auka á tekjur bæjar- og sveitarfélaganna, þ.e.a.s. auka bæjar- og sveitarstjórnunum möguleika á því að ráðstafa fé. En mér virtist skilningur hans á því, hvað væru útsvör og hvað aðrar tekjur, vera nokkuð annarlegur, samanborið við sveitar- og bæjarstjórnarlög. Sveitarstjórnarlögin gera ráð fyrir því, að ef tekjustofnar sveitarfélaganna hrökkva ekki fyrir útgjöldunum, þá megi jafna niður útsvörum fyrir því, sem á vantar. Allar þær tekjur, sem sveitarfélögin fá inn með föstum tekjustofnum, verða auðvitað til þess að lækka álögð útsvör.

Hv. þm. Vestm. sagði, að Framsfl. fylgdi þessu máli og þess vegna mundi það ná fram að ganga. En ég velt ekki til þess, að þetta sé flokksmál, og ég hef ekki talað um það sem slíkt, heldur sem maður, sem starfar í sveitarstjórn, og fyrir mér vakir það, að rétt sé að veita sveitarstjórnunum heimild til þess að hækka gjöld af fasteignum um ákveðna hundraðstölu frá því, sem var 1937, en allir vita, að síðan hefur verðgildi peninga breytzt og það svo, að telja má, að fasteignir séu nú tíu sinnum meira virði en þær voru 1940. Það er algerlega rangt að leggja þetta þannig út, að hér sé flokksmál á ferðinni, enda getur hv. þm., ef hann lítur á nál. meiri hl. fjhn., séð, að það er sjálfstæðismaður, sem myndar þar meiri hl. ásamt mér og hv. 1. þm. Eyf.

Það getur verið, að hér sé ekki verið að rétta bæjarfélögunum sterka hjálparhönd, en það er verið að færa l., sem sett voru fyrir mörgum árum, til samræmis við það ástand, sem við eigum nú við að búa, og ekki gengið lengra en að fimmfalda grunntölur, sem í rauninni mætti tífalda. Það er því varla, að of langt sé gengið gagnvart þeim mönnum, sem komið hafa fé sínu í fasteignir. Og eitt er mjög mikið atriði í þessu sambandi, að með þessari heimild ætti að nást til þeirra manna, sem búa utan þess sveitarfélags, sem þeir eiga fasteign í. Það eru þess mörg dæmi, að til þeirra manna hefur reynzt ómögulegt að ná við niðurjöfnun skattanna.