22.01.1952
Efri deild: 68. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 813 í B-deild Alþingistíðinda. (1185)

167. mál, fasteignaskattar til sveitarsjóða

Frsm. minni hl. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. Mér þótti vænt um yfirlýsingu hv. þm. S–Þ. um það, að samvinnufélögin ættu að greiða skatta í samræmi við aðra gjaldendur. Þetta er merkileg yfirlýsing, en hin yfirlýsingin um það, að þau gerðu það, var ómerkileg. Og ég er vel fær um að dæma um það. Ég hef sjálfur í fjöldamörg ár verið kunnugur í verzlun, sem stóð við hliðina á kaupfélagi, og varð þessi verzlun að greiða 20–30 þús. kr. á hverju ári til sveitarsjóðs, en kaupfélagið greiddi aldrei yfir 3000 kr. Útgjöld kaupfélagsins voru svona lág, af því að verzlunin við utanfélagsmenn var svo lítil. En þegar verzlunin, sem þarna stóð við hliðina á kaupfélaginu, var lögð niður, var heldur ekki hægt að taka meira af kaupfélaginu en áður hafði verið, og fólkið varð sjálft að bera þessar 20–30 þús. kr., sem verzlunin greiddi þar áður, því að ekki hækkaði útsvar kaupfélagsins. Það er því ekki rétt, að kaupfélögin greiði skatta til jafns við önnur fyrirtæki í landinu.