22.01.1952
Efri deild: 68. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 815 í B-deild Alþingistíðinda. (1192)

167. mál, fasteignaskattar til sveitarsjóða

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Ég vil þakka báðum síðustu ræðumönnum fyrir það, að þeir hafa sagt það sama og ég hélt fram, að kaupfélögin greiði ekki skatta eftir sömu reglum og aðrir. Hitt, hvort þetta sé sanngjarnt, hef ég ekki talað um og leiði alveg hjá mér að dæma um.