23.01.1952
Efri deild: 69. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 816 í B-deild Alþingistíðinda. (1197)
167. mál, fasteignaskattar til sveitarsjóða
Frsm. meiri hl. (Karl Kristjánsson):
Herra forseti. Á milli 2. og 3. umr. hefur meiri hl. fjhn. átt viðræður um málið og kom saman um, að rétt væri að bera fram smábrtt. við 1. gr. til þess að gera þar ljós tvö atriði.
Það kom fram við 2. umr., að mönnum var spurn, hvað heyrði undir önnur gjöld. Það er hægt að benda á ýmis gjöld, sem undir þetta heyra, svo sem ræsagjöld og gangstéttagjöld, þó að vitaskuld sé ekki hægt að tíunda allt. Ég veit t.d. um eitt sveitarfélag, sem innheimtir sérstök gjöld af fasteignum til vegarlagningar hjá sér. Til þess að gera þessi ákvæði ekki að neinu leyti hættuleg, þá þykir meiri hl. rétt, að sveitarstjórnum sé þetta heimilt að fengnu samþykki félmrh. Þetta er einnig gert til þess, að meira samræmi náist. Enn fremur ef ágreiningur yrði hjá sveitarstjórnum um að nota heimildina og meiri hluti vildi nota hana, en minni hluti ekki og hefði góð rök máli sínu til stuðnings, þá gæti sá minni hluti fengið leiðréttingu hjá félmrh. Enn fremur má ekki vera neinn vafi um þessa heimild, vegna þess að fasteignamat hefur ekki verið endurskoðað í 10 ár, og Alþingi gæti tekið sig til og látið endurskoða fasteignamatið. Þá er rétt að hafa það í höndum félmrh., hvort heimildin skuli gilda áfram, eftir að fasteignamat breytist. Þetta tvennt vildi meiri hl. n. leggja til að tekið verði upp í frv. Fyrsta gr. frv. verður þá orðuð þannig: „Heimilt er sveitarstjórn, að fengnu samþykki félagsmálaráðherra, að ákveða, að innheimta skuli með allt að 400% álagi alla skatta og önnur gjöld, sem miðuð eru við núgildandi fasteignamat og aukamat og renna eiga í sveitarsjóð, að vatnsskatti undanskildum.“ Inn í greinina er þá bætt orðunum „að fengnu samþykki félagsmálaráðherra“ og „núgildandi“ og „aukamat“. — Ég vona, að ég hafi gert þetta nægilega ljóst. Vil ég svo leyfa mér að afhenda hæstv. forseta brtt.
Hér hefur komið fram brtt. við þessa umr. frá hv. þingmanni Barðstrendinga, sem felur í sér, að heimild þessi skuli aðeins veitt Akureyri. Ég fyrir mitt leyti vil mæla á móti þessari tillögu, því að ég tel rangt að veita aðeins einu sveitarfélagi þessa heimild. Ég þykist vita, að sveitarfélög eru sem aðrir með það, að þau vilji öll njóta sömu réttinda til álagningar í þessu efni, enda kom það fram í gær, að bæjarfélagið á Ísafirði óskar eftir að mega njóta þessarar heimildar. Það er fullvíst, að sveitarfélögin hefðu látið til sín heyra fleiri, ef þau hefðu haft tækifæri til að fylgjast með þessu máli, en það hefur ekki verið aðstaða fyrir þau til þess að gera það, því að málið var lagt þannig fram: upphafi, að þetta væri heimild fyrir allar sveitarstjórnir, og hafa þær þá ekki séð ástæðu til að láta sérstaklega til sin heyra um þetta, enda mæla öll rök með því, að þeim verði gert hér jafnt undir höfði.