23.01.1952
Efri deild: 69. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 825 í B-deild Alþingistíðinda. (1212)
167. mál, fasteignaskattar til sveitarsjóða
Steingrímur Aðalsteinsson:
Herra forseti. Ég skal ekki lengja umr. mikið. Það er aðeins út af ummælum hv. þm. S-Þ., sem ég vil segja nokkur orð. Ég ætla mér ekki þá dul að fullnægja öllu réttlæti og ætla mér ekki að bera á móti því, að slík dæmi finnist, sem hann talaði um. En þó áliti ég það skárra, að slíkt kæmi fyrir, en að menn, sem skulda næstum allt húsverð sitt, missi húsin, en dæmi þess verða mörg, að þessi skattur riði baggamuninn. Og í því dæmi, sem hv. þm. S-Þ. tók, held ég að betra væri og meira virði að bjarga þeim manni, sem væri að því kominn að missa hús sitt, en þótt ef til vill opnaðist smuga fyrir hinn manninn, sem hv. þm. tók dæmið af.