16.10.1951
Neðri deild: 13. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 826 í B-deild Alþingistíðinda. (1223)
50. mál, sauðfjársjúkdómar
Flm. (Andrés Eyjólfsson):
Herra forseti. Hv. þingdeild. Það er naumast þörf á því að hafa langan málflutning fyrir þessu frv. Efni þess er einfaldlega það, að lagt er til, að hækkaðir verði vextir af skuldabréfum þeim, sem ríkissjóður hefur heimild til að gefa út bændum og öðrum sauðfjáreigendum til handa vegna bóta þeirra, sem honum er skylt að greiða í sambandi við fjárskipti á sauðfjársjúkdómasvæðunum. Réttur ríkissjóðs til útgáfu skuldabréfanna nær til 40% af fjárskiptabótunum og 80% af sauðleysisbótunum, sem greiddar eru þeim, sem sauðlausir verða að vera eitt ár, svo sem var s.l. ár í Borgarfjarðarsýslu, nokkrum hluta Mýrasýslu og auk þess á þeim svæðum, þar sem garnaveikin hefur gert vart við sig. — L., sem heimila ríkissjóði útgáfu þessara skuldabréfa,.voru samþ. á Alþ. 1949, og fóru fyrstu greiðslur fram á. s.l. hausti.
Fram að þeim tíma, að þessi l. voru sett, voru allar bætur greiddar í peningum.
Inn á þessa braut, að gefa út skuldabréf til 5 ára með 4% vöxtum, mun hafa verið farið vegna þess, að hagurríkissjóðs stóð þá svo, að ekki þótti fært að greiða úr honum árlega alla þá upphæð, sem fjárskipti hvers árs kröfðu, ef þau áttu að ganga svo ört sem þörfin og allar aðstæður heimtuðu. Var því þetta ráð tekið, að skipta þunganum af þeim á fleiri ár. Bændur töldu sig verða að hlíta þessu, þar sem þeir vildu allt til vinna að losna sem fyrst við hina miklu vágesti, mæðiveikina og garnaveikina, jafnvel þótt fyrirsjáanlegt væri, að þeir þyrftu á öllu að halda til þess að koma sér upp fjárstofni að nýju, enda meiri líkur, þá er l. voru samin og sett, að auðið yrði að bjarga sér með bráðabirgðalánum, þar sem auðveldara var þá enn um slík lán og vextir skaplegri af þeim en nú er orðið.
Það hefði að vísu verið hagkvæmara fyrir bændur, ef fært hefði mátt teljast að fella niður úr l. heimild ríkissjóðs til útgáfu skuldabréfa vegna fjárskiptanna. En slíkt hefur þó ekki þótt fært að sinni. Enn er eftir að skipta á stórum svæðum og því eftir að greiða mikla styrki í fjárskiptabætur. Þó að hagur ríkissjóðs virðist munu verða sæmilegur í ár, þá mun í mörg horn að lita með væntanlegan tekjuafgang og hitt ekki víst, hvernig hagur ríkissjóðs kann að standa næstu árin. Ég sá mér því ekki fært að ganga lengra en það að fara einungis fram á, að vextir af skuldabréfunum verði hækkaðir úr 4% í 6%. Vona ég, að hv. alþm. finnist það, eins og mér, vera sanngjörn till., þegar miðað er við það, hversu lánsfjármarkaðurinn hefur breytzt og vextir af lánum hækkað síðan l. voru sett. Mér er kunnugt um það, að þar sem fjárskipti fóru fram í haust, voru mjög margir bændur, sem engin úrræði höfðu um að ná sér í fjárstofn, nema þeim væri veitt aðstoð til lántöku. Mundi það nokkuð liðka um hag þeirra bænda, sem svo er ástatt um, ef vextir skuldabréfanna verða hækkaðir, svo sem hér er lagt til. Yrði þá ef til vill hægt að selja skuldabréfin affallalaust eða affallalítið eða að þau yrðu tekin sem handveð fyrir lánum. Mundi það, þó að í smáu sé, liðka hag þeirra bænda, sem verst eru staddir.
Ég þarf varla að minna á, hvílíkt afhroð bændur í ýmsum héruðum hafa goldið vegna sauðfjárpestanna og þó fyrst og fremst í þeim héruðum, sem ákvæðið um útgáfu skuldabréfanna nær til. Þannig hefur sauðfjáreign bænda í þeim héruðum minnkað um og yfir helming, síðan sauðfjárpestirnar byrjuðu að herja á þau, þrátt fyrir stöðuga viðleitni flestra bænda í þeim héruðum til að halda við sauðfjárstofninum með því, jafnvel ár eftir ár, að setja á vetur öll gimbrarlömb í þeirri trú, að „öll él birti upp um síðir“, sem þó hefur reynzt tálvon ein.
Fjöldi bænda á þessum svæðum er þannig settur, að eina vonin til sjálfsbjargar og sæmilegrar afkomu er að koma sér upp hæfilegum sauðfjárstofni. En fjárhagsleg afkoma þeirra er slík eftir 16–17 ára baráttu við sauðfjárpestirnar og afurðatap af þeirra völdum, að þeir mega einskis í missa.
Ég veit, að þessi úrbót, sem hér er farið fram á, veitir ekki bændum þá aðstoð, sem margir þeirra þarfnast. En þó mundi samþykkt þessa frv. nokkuð liðka hag þeirra, án þess þó að hægt sé að segja, að ríkissjóði sé verulega íþyngt. Og heildarafkoma hinna smáu bænda getur oltið á því, hvort þeim er gert fært að eignast 10–20 lömbum fleira eða færra.
Ég vil svo vona, að hv. Alþ. fallist á, að hér sé um sanngirnismál að ræða, og veiti því samþykki sitt. — Að svo mæltu vil ég leyfa mér að óska þess, að frv. verði að þessari umr. lokinni vísað til 2. umr. og hv. landbn.