12.11.1951
Efri deild: 27. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 839 í B-deild Alþingistíðinda. (1245)

50. mál, sauðfjársjúkdómar

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Það er augljóst mál, að með því að gera ekki við girðinguna á þessu hausti hefur sauðfé getað gengið gegnum, yfir og undir hana, allt frá því að veikin kom upp og til þessa dags. Það hafa ekki enn þá komið þeir snjóar, að það hefði ekki verið hægt að gera við hana. Og það er jafnvist, að það verður ekki búið að gera við hana fyrr en í júní. Þetta vita sauðirnir á Vestfjörðum, og er það hart, að sjálfur forustusauðurinn sé óvitrari í þessu efni en þeir.