04.12.1951
Neðri deild: 36. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 875 í B-deild Alþingistíðinda. (1302)
101. mál, þingsköp Alþingis
Atvmrh. (Ólafur Thors):
Herra forseti. Ég þarf ekki að eyða mörgum orðum að ræðu hv. 2. þm. Reykv. Hann talaði nú einkum um, að það þyrfti að breyta frv. Það, sem vakti fyrir flm. þessa frv., var að útiloka kommúnista frá afskiptum af utanríkismálum. Í því efni hefur engu verið breytt. Það eina, sem gert hefur verið, er það, að kveðið hefur verið skýrar á um réttindi þeirra, sem eftir eru. Ég hef ekki ástæðu til að harma þá breytingu. Það var sameiginlegur vilji okkar, sem að frv. stóðum, að þetta kæmi sem skýrast í ljós. — Meginkjarni ræðu hv. 2. þm. Reykv. var að halda því fram, hver höfuðnauðsyn það væri, að kommúnistar væru hafðir í ráðum um öll utanríkisviðskipti, og hann lofaði mjög nýsköpunarstjórnina í því sambandi. Það var jafnan gott samkomulag í nýsköpunarstj. um að láta Framsfl. ekki hafa hlutdeild í málunum, hvorki utanríkismálum né öðrum. Þó var ósamkomulag um, hvernig ætti að ráðstafa vörum, sem fleiri aðilar sóttust eftir. Þetta stafaði af því, að báðir aðilar vildu fá meira síldarlýsi með fiskinum en við gátum látið af hendi. Þegar svo var komið, að hvorki var hægt að leysa sölu lýsisins né fisksins, var mér falið að reyna að finna úrlausn. Ég tók það að mér, þótt mér virtist það í fyrstu vonlaust verk, en mér tókst það þó, og ég gerði það einsamall.
Það var höfuðmisskilningur hjá hv. 2. þm. Reykv., að hann virtist halda, að verzlunarsamningar væru nú sama eðlis og í tíð nýsköpunarstjórnarinnar. Þá seldi stj. allt, en nú selja eigendur vörunnar hana sjálfir og ákveða verðið og stj. hefur lítið þar um að segja. Gangur málsins er sá, að sá maður, sem er tengiliður milli utanrmn. og framleiðendanna, Pétur Thorsteinsson deildarstjóri, hefur sér til ráðuneytis umboðsmenn allra helztu útflytjendanna, t.d. S.H., S.Í.F., síldarútvegsn., S.Í.S., og nokkra aðra, sem eru umboðsmenn eigendanna. Þessir menn eru ætíð kvaddir til ráða, er um sölusamninga er að ræða. Hér er með þessu stefnt í voða með síaukinni dýrtíð, sem bezt kom í ljós í sambandi við söluna til Ungverjalands, þaðan sem við urðum svo að kaupa rándýrt hveiti, sem við hefðum getað fengið miklu ódýrara annars staðar.
Þetta voru veigamestu villurnar í ræðu hv. þm., en þær nægja til þess að raska öllu því, sem hann sagði um þessi efni, og er hans till. að öllu leyti óþörf. Og ég minnist þess heldur ekki, að slík mál séu nokkurn tíma borin upp í utanrmn., vegna þess að þeir, sem þessa vöru eiga, sjá um slík mál sjálfir.
Hv. þm. skaut því inn í ræðu sína, að stjórnin hefði svikizt um að hlutast til um, að Hraðfrystihúsin keyptu af togurunum. Þetta er algerlega úr lausu lofti gripið, því að stj. hefur gert mikið að því að beita áhrifum sínum að því, að samkomulag mætti takast á milli þessara aðila. Þetta hafa stjórnarvöldin gert, eftir að borgarstjóri Reykjavíkur hafði átt mestan þátt í því að koma þeim samningum af stað. Og ég veit ekki betur en þessir samningar hafi náð fram að ganga og ríkisstj. hafi tilkynnt hraðfrystihúsaeigendum, að hún gæfi frjáls útflutningsleyfi á fiski, eftir að hann hefði verið hraðfrystur. Og ég veit ekki betur en að hún hafi einnig beitt áhrifum sínum til þess, að hann mætti sem víðast seljast og fyrir sem bezt verð, og má þar til nefna, að tilraunir hafa verið gerðar með það fyrir augum, að hann gæti síðan orðið útflutningsvara jafnvel til Arabíu og Ísrael. En það er svo fjarri sanni, að ríkisstj. hafi gert eitthvað til þess að hindra sölu þessara afurða; hún hefur þvert á móti gert sitt til að tryggja farsæla markaðsleit og góð málalok fyrir alla aðila.
Varðandi það, að nauðsynlegt sé að hafa kommúnista í utanrmn., til þess að þeir geti þar haft farsæl áhrif, verð ég að segja það, að þetta frv. væri ekki fram borið, ef lýðræðisflokkarnir vildu eitthvað hafa saman við þá að sælda.