04.12.1951
Neðri deild: 36. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 891 í B-deild Alþingistíðinda. (1307)

101. mál, þingsköp Alþingis

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Það er leitt, að hæstv. atvmrh. skuli vera vikinn af fundi, því að mig langaði að svara nokkrum atriðum í ræðu hans.

Það er þá fyrst, að ég veitti því athygli, að hann endurtók ekki neitt af því, sem hann hafði sagt viðvíkjandi verðlagsmálunum, og viðurkenndi því með þögninni það, sem ég hafði sagt. Eins var um útflutninginn, hann gekk inn á það, sem ég hafði leiðrétt í fyrri ræðu hans.

Víðvíkjandi því, að við sósfalistar séum með rússneska pólitík í sambandi við herstöðvamálið, þá vil ég benda á það, að afstaða sósíalista er hin sama og afstaða Alþ. 1946. Þá var því lýst yfir af utanrmn., er Ísland gekk að sáttmála hinna sameinuðu þjóða, að Íslendingar mundu ekki veita herstöðvar í landi sínu, hvorki sameinuðu þjóðunum né öryggisráðinu. Þetta er bókað sem samþykkt utanrmn., Bjarni Benediktsson skrifaði fyrstur undir, og ríkisstj. var falið að tilkynna þetta sem skilyrði fyrir því, að Ísland gerðist aðili að sáttmálanum. Við sósíalistar höfum haldið fast við þessa stefnu og ekki hnikað frá þeirri skoðun, sem Alþ. lét þá ákveðið í ljós, áður en ríkisstj. hafði verið keypt upp með Marshallfé.

Viðvíkjandi því, sem hæstv. atvmrh. sagði, að við sósíalistar hlýddum engu nema erlendum fyrirskipunum, þá ætti hann að vara sig á því að endurtaka þetta of oft. Ef hann ætlar að færa þessa hugsun út í æsar, mundi það þýða, að hann væri sjálfur sekur um að framkvæma rússneskar fyrirskipanir í sambandi við allt það bezta, sem hann hefur gert í lífinu, árin 1944–46. Enginn barðist þá betur fyrir að framkvæma stefnu sósíalista en hann.

Það var hjákátlegt, þegar hæstv. atvmrh. vildi setja hernámssamninginn 5. maí í vor í samband við það, að Vishinski hefði hlegið heila nótt í október í haust í París. Ef hlátur Vishinskis í október í haust á að vera orsök samningsins 5. maí í vor, þá er hlutunum snúið svo við, að það gengur helzt til of langt.

Svo talaði hæstv. atvmrh. hér ekki bara fyrir Sjálfstfl., heldur líka Alþfl., þar sem enginn Alþýðuflokksmaður hefur opnað sinn munn. Það fer vel á því, ekki sízt hvað hv. 3. landsk. snertir, því að oft hefur verið náið milli þeirra. En mætti ég spyrja, með hliðsjón af umr. eftir 30. marz í fyrra: Hvernig leit hæstv. atvmrh. á hv. 3. landsk. þm. (GÞG) og hv. 6. landsk. þm. (HV), þegar þeir greiddu atkv. á móti Atlantshafssamningnum? Voru þeir lýðræðissinnar þá? Eða mætti ég spyrja, hvað viðvikur Keflavíkursamningnum, voru hæstv. landbrh. og aðrir framsóknarmenn, sem þeim samningi voru andvígir, lýðræðissinnar? Eftir hverju á að meta lýðræðissinnana? Ef atkvgr. verður hér um næstu kröfur Bandaríkjanna, hverjir verða þá lýðræðissinnar og hverjir ekki?

Það virðist sem eitt kjörorð gangi hér í gegn, þegar þessi mál eru rædd. Kjörorð ríkisstj. í þessum málum virðist vera: Aftur með munninn ! Upp með hendurnar! Enginn þm. rís upp til að verja aðgerðir ríkisstj. Og loks er svo komið, að hæstv. atvmrh., sem reynt hefur að bregða húmoristískum blæ yfir þetta í stað þess að ræða það í alvöru, fæst ekki til að ræða málið frekar.

Svo að síðustu: Hæstv. atvmrh. er sýnt um að bregða upp myndum af hæstv. utanrrh., sem geymast eins og skemmtilegar spémyndir. Við munum eftir ræðunni: Verkin lofa meistarann. Nú lýsir hann utanrrh. sem „kyndilbera frelsisins“. Ég er hræddur um, að það fari eins um þessi hástemmdu ummæli, þegar Morgunblaðið fer að prenta þau, eins og þegar Morgunblaðið prentaði upp síðustu ræðu hans. Hæstv. ráðh. talaði þá af miklum fjálgleik um mannvit, dugnað, þekkingu og eindæma drengskap utanrrh., en þá fór svo, að jafnvel Morgunblaðinu þótti fullmikið sagt. Þegar það prentaði ræðuna daginn eftir, var talað þar um mannvit, þekkingu og dugnað, en drengskapnum var sleppt. Það var líka spurt þá, hvort ekki mætti leggja drengskapinn undir dóm hæstv. menntmrh., Björns Ólafssonar, og ég býst við, að þá hafi fréttaritari Morgunblaðsins áttað sig á, hvað um var að vera, og séð, að hólið verkaði sem naprasta háð, þegar í það vantaði grínundirtóninn, sem kemur fram, þegar hæstv. atvmrh. segir það.