13.12.1951
Efri deild: 42. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 897 í B-deild Alþingistíðinda. (1319)
101. mál, þingsköp Alþingis
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Ég hafði ekki ætlað mér að taka hér til máls, en út af ummælum, sem hv. frsm. minni hl. beindi til mín, tel ég rétt að segja nokkur orð.
Það kemur fram hér mikill misskilningur hjá hv. frsm. um eðli þessara breytinga, sem hér á að gera. Hann talaði alltaf á þá leið eins og það eigi að svipta kommúnistafl. þinglegum rétti, sem leiddi af þeirra atkvæðastyrkleika á Alþingi. Þetta er misskilningur. Með þessu frv. er ekki ætlunin að svipta neinn flokk áhrifum í utanríkismálum, að svo miklu leyti sem kemur til kasta Alþingis að fjalla um þau mál. Þeir hafa eftir sem áður sinn fulltrúa í utanrmn. og hafa því sama kost á því og áður að taka afstöðu til mála. Hér er um allt annað að ræða. Það er ekki ætlunin að svipta þingmenn þessa neinum rétti, en þeir geta ekki búizt við því, að ríkisstj. sýni þeim sérstakan trúnað um þau mál, sem undir hana heyra. Á þessu er meginmunur. Þetta vitum við allir og ekki sízt hv. frsm. minni hl., sem skilur muninn á afstöðu framkvæmdavaldsins og löggjafarvaldsins. Ætlunin er ekki sú að skerða þinglegan rétt þessara þm. eða útiloka þeirra sjónarmið. — Hitt gefur svo að skilja, að þegar jafnróttæk klofning er komin um meðferð utanríkismála og eins og blöð sósíalista tala um okkur daglega, þá er óframkvæmanlegt, að þeim sé sýndur neinn sérstakur trúnaður. Það getur engum dottið í hug, að ríkisstj. hafi sérstaka samvinnu við þessa menn í utanríkismálum. Raunin hefur líka orðið sú, að þegar ríkisstj. hefur sýnt þessum mönnum trúnað, þá hefur það orðið til tjóns fyrir land og lýð. Með þessu er ekki verið að hefja fjandskap gegn nokkrum mönnum, og mér finnst, að kommúnistar geri lítið úr sér með því að vera að sárbæna okkur um að sýna sér trúnað, eins og þeir tala um okkur. Risið er ekki alls staðar hátt, eins og þegar Einar Olgeirsson bað okkur að senda sig sem fulltrúa okkar á fundi sameinuðu þjóðanna um árið. Tilfellið er, að hugmyndir þessara manna eru einkennilegar, og þó ættu þeir að hafa skilning á því sjálfir, að þeir geta ekki haft samvinnu við framkvæmdavaldið í þessum málum. Hitt hefur svo engum dottið í hug, að svipta menn þessa valdi á þingi, og það er merkilegt, að þeir skuli geta látið sér detta í hug skerðingu á þingræði.
Hv. þm. fór að tala um það, að ég hafi skýrt rangt frá umr. á lokuðum fundi, sem haldinn var um utanríkismál 1945. Það vill þannig til, að hv. þm. var ekki viðstaddur og er því ekki dómbær á það, sem gerðist ...
Ég hafði þá aflað gagna, sem hv. þm. (FRV) vitnaði í. Ég skýrði þá rétt frá, að það var í stórblaðinu Times hinn 14. ágúst s.l., sem það blað vitnaði í ummæli Eisenhowers hershöfðingja, en það mun vera það, sem hv. þm. átti við og vitnaði í og var þess eðlis, að það kemur heim við það, sem ég sagði fyrr. Á 5. síðu í 5. dálki er sama sem ég sagði, en hv. þm. (FRV) hefur misskilið á sama veg og er hann vitnaði í hásætisræðu Bretakonungs og tiltók ákveðna málsgrein, sem ég vék ekki að að öðru leyti en það, að Bretar vilja efla samvinnu við bandalagsríki sín í Evrópu. Einnig, ef hv. þm. lítur á stórblaðið Manchester Guardian frá 29. nóv., þá getur hann séð, að ekki er ætlunin að breyta neinu um stjórn Þýzkalands, en hann hefur fundið út, að breyta ætti eitthvað um þar og af þeim sökum ætti að breyta Keflavíkursamningnum. Af þessu blaði má sjá, að um algeran misskilning er að ræða hjá hv. þm. Ég þekki hv. þm. það mikið, að ég býst við, að hér sé um misskilning að ræða, sem sé alveg óviljandi af hans hendi. Hann hefur byggt á upplýsingum, sem eru ekki réttar, og framkomu kommúnista á Alþingi 1945, en þá var hv. þm. ekki hér, er óvandaðir menn vildu annaðhvort segja Japönum eða Þjóðverjum stríð á hendur. (BrB: Hvar er heimildin?) Heimildin er í hugum þm. (BrB: Hver var afstaða sendiherrans í Washington?) Það er mikill munur á því, sem hr. Thor Thors sagði um þetta. Hann hefur aldrei haldið því fram, að Íslendingar ættu að vera hlutlausir í deilum heimsmálanna, en þvert á móti haldið því fram, að Íslendingar ættu að taka fulla afstöðu til málanna og skipa sér við hlið lýðræðisþjóða. Kommúnistar hafa löngum haldið uppi áróðri fyrir því, að Íslendingar ættu að vera hlutlausir, en þessir sömu menn héldu því svo fram, að Íslendingar ættu að segja tveim stórveldum stríð á hendur. Þetta stafaði vítaskuld af Rússadekri þeirra. Þetta var nú það, sem þessir menn töldu heppilegt fyrir nýstofnað þjóðveldi Íslendinga, að Íslendingar gerðust raunverulegir stríðsþátttakendur. Þetta er staðreynd, sem ekki verður í móti mælt.