13.12.1951
Efri deild: 42. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 900 í B-deild Alþingistíðinda. (1321)

101. mál, þingsköp Alþingis

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Við, ég og hv. þm., sem síðast talaði, segjum það vera klippt og skorið. Það er ósköp eðlilegt, að deilt sé um ýmis atriði, sem fram koma í máli þessu. Mér dettur ekki í hug, að ummæli Eisenhowers eða Churchills varðandi samningana gagnvart Þýzkalandi séu fölsuð, en frumheimildin er staðfest sem ég sagði. Ég skal ekki deila frekar um það við hv. þm., en þetta kemur fram í blöðum eftir fundinn í París 22. nóv. síðastl.

Hv. þm. spurði, hvaða mál kæmu fyrir alla utanrmn. og hvaða mál kæmu fyrir hina 3 á milli þinga. Fyrir 7 manna n. koma t.d. öll mál, sem síðar þurfa afgreiðslu við á Alþingi. Um þau mál, sem eru á vissu undirbúningsstigi, svo að ekki er hægt að leggja þau fyrir þing, þá er gert ráð fyrir, að slík mál verði rædd og undirbúin til afgreiðslu í 3 manna n.

Ég get nú varla varizt brosi, hversu vopnaviðskiptí hafa snúizt fyrir kommúnistum í þessu máli, en þeir hafa sem kunnugt er ekki sparað skammirnar og brigzlyrðin í okkar garð. Þeir standa nú naktir gagnvart þjóðinni, og framkoma þeirra öll hefur gert það að verkum, að þeir eru nú fyrirlitnir af alþjóð og þingheimi öllum. Er skemmst að minnast hinnar álappalegu framkomu hv. 5. landsk., Ásmundar Sigurðssonar, í útvarpinu í gærkvöld.

— Það eru nú verstu skammirnar, sem stjórnmálaflokkarnir bera hver á annan, ef hægt er að bera á flokk, að hann hafi unnið með kommúnistum. Það virðast nú vera verstu skammirnar, sem hægt er að bera á þjóðmálaflokk.