11.12.1951
Efri deild: 41. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 906 í B-deild Alþingistíðinda. (1340)

141. mál, fiskveiðisjóður Íslands

Jóhann Jósefsson:

Herra forseti. Hæstv. ráðh. tók sér fyrir hendur að bera blak af þeirri hæstv. stjórn, sem kölluð hefur verið utanþingsstjórn. Það var alveg óþarfi að gera það vegna minna ummæla því að ég gaf ekki í skyn að hún hefði valið vélarnar. Ég benti aðeins á þá staðreynd, að sænsku bátaviðskiptin hefðu farið fram undir hennar handleiðslu, og ég býst ekki við, að hæstv. ráðh. geti neitað þeirri staðreynd. En aðaltilgangur minn með ræðu minni var að henda á það, hvað skeði, þegar ríkisvaldið tæki fram fyrir hendurnar á hinu frjálsa framtaki í vali vélanna, til að sýna fram á, að hið frjálsa framtak er ekki tóm vitleysa. Í þessu sambandi hefur því oft verið haldið fram, að það eigi að halda sig við örfáar vélategundir, til þess að auðveldara verði með útvegun á varahlutum. Höfuðatriði míns máls var að benda á þetta og svo hitt, að halda eigi áfram við skipabyggingar í þessu landi fremur en kaupa sænska báta, þar sem reynsla þessara báta hefur orðið þannig. Á hinu hefur svo orðið nokkuð önnur útkoma, þegar Íslendingar hafa keypt báta, sem Svíar byggðu handa sjálfum sér, svo að ég tali nú ekki um þá báta, sem byggðir hafa verið hér á landi og hafa reynzt hin beztu skip.

Út af athugasemd hv. þm. Barð. vildi ég segja það, að hann er það raunsær maður, þótt okkur kunni að hafa greint á um skólalærdóm og reynslulærdóm, þá er hann sá maður í þessari hv. deild, sem einna oftast vitnar til þess, hvað lífið og reynslan kennir mönnum, hv. alþingismönnum sem öðrum. Því býst ég við, að hann mundi síðastur manna kasta steini að reynslulærdómnum. Og mér finnst það nokkuð langt gengið hjá hv. þm. að ætla sér að fara að eigna mér gallana á þessum póla-dieselmótorum, vegna þess að á sínum tíma stóð deila á milli mín og hv. deildarmanna um þetta mál. Ég viðurkenni fúslega, að nauðsynlegt er að hafa skólalærdóm fyrir menn, sem stunda slíka báta, en engu að síður ber að líta á margra ára reynslu þeirra manna, sem hafa haft það fyrir atvinnu að meðhöndla slíkar vélar. Fyrir því höfum við mörg dæmi. — Þarf ég svo ekki að segja fleiri orð um þetta mál.