10.12.1951
Neðri deild: 39. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 908 í B-deild Alþingistíðinda. (1354)

142. mál, stofnlánadeild sjávarútvegsins

Frsm. (Pétur Ottesen):

Sjútvn. hefur flutt brtt. við þetta frv. Sú brtt. er fólgin í því að bæta inn í síðari málslið gr. „ábyrgðarmanna og síðari veðhafa“ í stað „síðari veðhafa“, eins og nú er í frv. Verður þá þessi málsgr. þannig orðuð: „Víkur þá hið fyrra stofnlán stofnlánadeildarinnar fyrir þessu nýja láni, enda liggi einnig fyrir samþykki ábyrgðarmanna og síðari veðhafa, ef einhverjir eru, til þess að veðin færist þannig aftur.“ Þetta er sett inn í frv. af því, að fyrir allmörgum árum lágu fyrir mörg lán hjá stofnlánadeild, og liggur fyrir viðbótarábyrgð frá bæjar- og sveitarfélögum. Þess vegna var nauðsynlegt að hæta inn í þessari breyt., en hún felur ekki annað í sér en þetta, og leggur n. til, að hún verði samþ. Ég vil geta þess, að prentvilla hefur slæðzt inn í brtt., og mun hún verða leiðrétt.