12.11.1951
Neðri deild: 26. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 930 í B-deild Alþingistíðinda. (1441)
83. mál, Iðnaðarbanki Íslands hf
Emil Jónsson:
Herra forseti. Mig langar til að segja aðeins örfá orð, sérstaklega út af minnihlutaáliti þeirra hv. þm. V-Húnv. (SkG) og hv. þm. Mýr. (AE), sem leggja til, að frv. um Iðnaðarbanka Íslands h/f verði afgr. á þann hátt, að því verði vísað frá með rökst. dagskrá, sem hv. þm. V-Húnv. hefur nýlega lesið.
Ég þarf ekki að fara mörgum orðum um það, hve lánsfjárþörf iðnaðarins sé mikil, það vita hv. þm. jafnvel og ég, hve henni er ófullnægt að mjög verulegu leyti. Það er sagt, og byggt á allgreinargóðum upplýsingum, að um eða yfir 1/3 landsmanna muni nú hafa sitt lífsuppihald af handiðnaði og verksmiðjustarfi ýmiss konar. Þetta er því án nokkurs samjafnaðar langfjölmennasta atvinnustéttin, sem til er í landinu. Hún hefur unnið mikið, þarft verk á undauförnum árum og áratugum, og er það þó sérstaklega á síðustu árum, sem hún hefur orðið til í þeirri mynd, sem hún hefur nú. Með tilkomu rafmagnsins hefur henni fleygt svo fram, að ekkert líkist því, sem áður var. En henni hefur verið undarlega lítill sómi sýndur af Alþ. og ríkisstj. og öðrum þeim aðilum, sem ættu þó að hafa „interessu“ fyrir því, að þessi atvinnustétt búi við þá aðbúð, að hún geti innt af hendi sitt starf á sómasamlegan hátt. Iðnaðamönnum hefur hálfvegis fundizt þeir vera hornrekur og lítið tillit til þeirra tekið.
Eins og ég sagði, býst ég við, að ekki sé ágreiningur milli mín og hv. þm. V-Húnv. um það, að iðnaðurinn hafi þörf fyrir mikið lánsfé og hafi minna lánsfé en hann þarf til þess að geta rækt starfið svo, að viðhlítandi sé. Tökum t.d. sjávarútveginn. Ef útgerðarmaður lætur veiða fisk úr sjó, getur hann fengið út á hann lán í bönkum landsins, en iðnaðarmaðurinn fær ekki neitt út á sína iðnaðarvöru, stundum tekst honum kannske að fá lán og stundum ekki, hann á það undir stjórnum þeirra bankastofnana, sem hann á við, hann á hvergi öruggt hæli að flýja í, þar sem honum sé búin sú fyrirgreiðsla, sem hann þarf á að halda, örugglega. Útvegsbankinn hefur það höfuðverkefni að lána til starfsemi sjávarútvegsins, og Búnaðarbankinn lánar fyrst og fremst til landbúnaðarþarfa, en engin stofnun er til, sem hefur því sérstaka hlutverki að gegna að sinna hörfum íðnaðarins. Það stendur að vísu í l. um Útvegsbankann, að hann skuli að einhverju leyti sinna þörfum iðnaðarins, og hann hefur gert það að verulegu leyti, en hefur ekki gert það fyrst og fremst, og iðnaðarmenn eiga þar ekki neinn forgangsrétt til þess að fá mál sín tekin fyrir og fá lán til sinnar starfsemi. Það er þetta, sem iðnaðarmönnum finnst á skorta, að þeir séu settir jafnir öðrum atvinnustéttum í landinu. Að þetta frv. leysi að fullu úr lánsfjárþörf iðnaðarins, er ég ekki kominn til þess að segja, en tel fullar líkur til, að með þessu fengjust miklar úrbætur, og þetta er viðleitni, sem iðnaðarmenn sjálfir hafa uppi og reyna að hrinda í framkvæmd og halda, að máli þeirra sé bezt borgið, ef þeir fái þetta frv. samþ.
Það kemur annars í ljós, þegar maður skoðar fjárlfrv. það, sem fyrir liggur, hvernig ríkisstj. lítur á þarfir atvinnuveganna. Þegar litið er á 16. gr., sést, að til þarfa þess aðila, sem þar um ræðir, þ.e. landbúnaðarins, leggur ríkisstj. til, að varið sé á einu ári 36 millj. kr. sem beinu framlagi, til sjávarútvegsins 41/2 millj., eða 3 sinnum minna en til landbúnaðarins, og til iðnaðarins 976 þús. kr., eða tæpri einni millj., þ.e. 37. parti af því, sem landbúnaðinum er ætlað. Í þessu er náttúrlega ekkert vit, þegar borið er saman við það, hve margir menn eiga afkomu sína undir þessari atvinnugrein, fleiri en undir landbúnaðinum. Ég er þó ekki að draga úr því, að landbúnaðarstörf í landinu séu nauðsynleg og æskileg, heldur er ég aðeins á móti hinu mikla ósamræmi, sem er í fjárveitingum til þessara atvinnugreina, þar sem annars vegar iðnaðurinn fær tæpa 1 millj. kr., en landbúnaðurinn hins vegar 36 millj. kr. Og þetta er svona þrátt fyrir það, eins og ég áður sagði, að samkv. síðustu upplýsingum, sem fyrir liggja, er rúmlega 1/3 landsmanna starfandi að iðnaði, en ekki nema 1/4 að landbúnaði. Annars er ekki búið að vinna úr skýrslum þeim, sem aflað var fyrir tæpu ári síðan, en þegar það er búið, vænti ég að komi enn fremur í ljós, að mannfjölgun í iðnaðinum hafi orðið meiri að tiltölu en í landbúnaðinum frá þeim tölum, sem ég nefndi áðan, og hygg ég að megi fullyrða, að landbúnaðurinn hafi ekki vaxið eins ört, hafi hann þá ekki farið aftur á bak. En sem sagt, aðalatriðið er þetta, þessi mismunur á meðferð atvinnuveganna hjá ríkisstj. og Alþ. allt fram að þessu þingi. Við þetta vilja iðnaðarmenn ekki una lengur, þeir krefjast þess, að farið sé með þá eins og aðra þjóðfélagsþegna, og að þeirra dómi er þetta frv., sem hér liggur fyrir, um stofnun iðnaðarbanka, spor í áttina í þessum efnum.
Nú segir hv. þm. V-Húnv., að það geti nokkuð orkað tvímælis, hvort þessi ráðstöfun með stofnun iðnaðarbanka sé iðnaðinum yfirleitt til nokkurs ávinnings. Þetta sé svo lítið, sem þarna er um að ræða, iðnaðarmenn hafi verið svo hæverskir, skilst mér, að sú úrbót, sem fást mundi með stofnun bankans, mundi hvergi nærri nægja til þess að hæta úr þeirri þörf. Ég skal að vísu viðurkenna það, að fulltrúar landbúnaðarins á þingi hafa verið öllu kröfuharðari til framlaga til sinna þarfa en iðnaðarmenn til sinna. Á þessu þingi er, eins og ég áður sagði, gert ráð fyrir, að tæpum 37 millj. kr. verði varið til þarfa landbúnaðarins á fjárl. Í upphafi þessa þings upplýsti fjmrh., að honum hefði tekizt að útvega til landbúnaðarins um 10 millj. kr. erlent lán, sem ríkissjóður tekur að sér gengistryggingu á, þannig að ef breyting verður á genginu, fellur hún á ríkissjóð, en ekki á bændur, þannig að með þessari lánsfjárútvegun erlendis hafa þeim verið veitt mjög aukin hlunnindi, þar sem gengisáhættan var frá þeim tekin um leið. Þetta eru á einu bretti 52 millj. kr., en við þetta hafa þingfulltrúar landbúnaðarins ekki látið sitja, heldur hafa þeir flutt tili. um það, að helmingur mótvirðissjóðs verði tekinn inn og tryggður til afnota í þessu skyni, og hafa vikið að því, að það mundi verða 200 millj. kr., sem þeir vildu hafa í sinn hlut til þess að greiða úr lánsfjárþörf landbúnaðarins. Þetta þótti þó ekki nóg, því að tveir þm. báru fram frv. um 24 millj. kr. framlag til Búnaðarbankans, enn aðrir um 5 millj. kr. aukningu á veðdeild Búnaðarbankans, og enn hefur verið borið fram frv. um Í millj. í stofnlánasjóð Búnaðarbankans og líklega fleiri frv. og till., sem hafa komið fram og farið í sömu átt, þó að ég hafi ekki tekið eftír því. En bara þessar fjárhæðir nema svo að hundruðum millj. króna skiptir, og furða ég mig því ekki á því, þó að hv. þm. V-Húnv. telji hér nokkuð smátt skammtað til iðnaðarins, en ég vil þá segja, að auðvalt er við að bæta, ef það er svo, að þetta sé það eina, sem á skorti, að frv. nái tilgangi sínum að hans áliti. Ég býst við, að það sé rétt, að öll vandamál iðnaðarins vegna lánsfjárþarfar hans verði ekki leyst með þessu, en er alveg sammála mönnum þeim frá iðnaðinum, sem hafa beitt sér fyrir þessu máli, að þetta mundi verða mjög verulegt skref, og mundi þá verða hægara þar við að bæta.
Hv. þm. V-Húnv. hefur látið prenta með nál. sínu tvö fskj., annað frá Landsbankanum, par sem bankastjórar þessa banka leggja til, að frv. verði frestað, þar til bankamálan. hefur lokið störfum sínum. Segjast þeir hafa boríð þetta undir bankastjóra Búnaðarbankans og Útvegsbankans, og hafi þeir verið þessu samþykkir. Þá er líka prentað álit formanns bankamálanefndar, Benjamíns Eiríkssonar, þar sem hann telur, að ekki sé tímabært eða heppilegt, að Alþ. samþ. frv. um stofnun iðnaðarbanka áður en n. hafi skilað áliti. En út af þessu vil ég geta þess, að iðnn. óskaði eftir því, að hæstv. iðnmrh., sem um leið er bankamálaráðh., mætti á fundi n. og léti uppi skoðun sína á málinu, og er fróðlegt að bera þá skoðun saman við skoðun formanns mþn. í bankamálum. Viðskmrh. hefur skipað mþn. í bankamálum upp á sitt eindæmi, án þess að kveðja Alþ. þar nokkuð til, svo að hann getur sagt n. fulkomlega fyrir verkum og er ekki bundinn við álit neins annars en sjálfs sín um það. Hann setur n. erindisbréf, hvernig hún eigi að starfa og hvað hún eigi að gera, en þegar iðnmrh. kemur á fund iðnn. Nd., lætur hann uppi á þessu máll svo hljóðandi skoðun, sem ég, með leyfi hæstv. forseta, leyfi mér að lesa upp úr gerðabók iðnn. Nd. frá 25. okt.:
„Iðnaðarmálaráðherra lét í ljós það álit sitt. að athugun sú nm bankamál, sem nú er gerð af þar til skipaðrí nefnd, komi ekki í bága við flutning þessa frv. Einnig taldi hann, að iðnaðurinn hefði þörf fyrir sérstaka lánsfjárstofnun.“
Þannig að ráðh., sem skipar n., segir, að þetta frv. fari ekki í bága við það starf, sem mþn. er ætlað, en form. mþn., sem starfar eftir fyrirskipun ráðh., segir að það fari í bága við það, sem n. er ætlað að gera. Mér kemur þetta, eins og ég sagði, ákaflega kynduglega fyrir sjónir. Það er náttúrlega greinilegt, að form. n. hefur á þessu annað álit en ráðh., en mér finnst augljóst, þar sem ráðh. setur n. erindisbréf, að þá sé það álit ráðherra, sem ræður, en ekki álit formannsins. Þannig að þessar umsagnir, sem minni hl. hv. iðnn. Nd., hv. þm. V-Húnv. og hv. þm. Mýr., hefur aflað sér, missa algerlega sitt gildi, vegna þess að ráðh., sem með þessi mál fer, ákveður, hvernig þeim skuli hagað, hann hefur kveðið upp sinn úrskurð í málinu og sagt, að þetta frv. komi ekki í bága við starf mþn.
Ég skal ekki hafa um þetta öllu fleiri orð, en fyrir mér vaktí þetta tvennt með því að segja þessi fáu orð, annars vegar að slá því föstu, að fskj. þau, sem hv. minni hl. hefur birt með nál. sínu. eru byggð algerlega á röngum forsendum og fá ekki staðizt, um það hefur ráðh. kveðið upp sinn úrskurð. Í öðru lagi vildi ég benda á þann feikna mismun, sem er og hefur verið á afgreiðslu mála hér í þinginu eftir því, hvaða atvinnustéttir í landinu eiga í hlut. Þegar iðnaðarmenn koma og biðja um 3 millj. kr. framlag til bankastofnunar og vilja um leið leggja fram hærri upphæð sjálfir. rísa menn hér upp öndverðir á þingi og vilja ekkert með þetta hafa og á engan hátt þennan atvinnuveg styrkja. En fulltrúar annars atvinnuvegar, þ.e. landbúnaðarins láta sér ekki nægja 37 millj. kr. framlag á fjárl. og 16 millj. kr. erlenda lántöku, heldur vilja þeir fá í viðbót 240 millj., eða fyrirheit um 240–250 millj. kr. af opinberu fé til að styrkja þennan atvinnuveg. Fyrr má nú rota en dauðrota, verð ég að segja, og mér finnst, að fulltrúar þess atvinnuvegar, sem vill fá þessa aðbúð ríkissjóðs, ættu ekki að láta það heyrast, að þeir séu að telja eitt vesalt 3 millj. kr. framlag eftir iðnaðinum.