27.11.1951
Neðri deild: 34. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 949 í B-deild Alþingistíðinda. (1463)

83. mál, Iðnaðarbanki Íslands hf

Frsm. meiri hl. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Í þessum umr. og í grg. fyrir frv. er það rökstutt, hvers vegna þetta frv. er fram borið. Undirbúningur þess hefur staðið yfir um nokkurra ára skeið, og hafa meginsamtök iðnaðarins, Landssamband iðnaðarmanna og Félag íslenzkra iðnrekenda, unnið að undirbúningi málsins og farið þess á leit við iðnn. Nd. í fyrra, að málið yrði flutt. Það fékk góðar viðtökur hér í d. og var afgreitt hér, en stöðvað í Ed. Nú hefur bankanefnd iðnaðarins farið fram á, að frv. þetta yrði flutt að nýju, og vænti ég þess, að málið fái eins góða göngu hér og í fyrra og Ed. taki því eins vel. Þó að iðnn. hafi ekki getað orðið sammála um flutning frv., vil ég þó fagna því, að hér í umr. hefur komið fram frá mönnum, sem telja sig ekki geta stutt málið á þessu stigi, skilningur og viðurkenning á því, að iðnaðurinn þurfi á mjög auknu fé að halda. Þannig kemur það glöggt fram í brtt. hv. þm. Borgf. og ræðu hans, að hann vill verja allmiklu fé nú þegar og á næstu árum úr ríkissjóði til lánveitinga iðnaðinum til handa og er þar vissulega mjög stórtækur, eins og brtt. á þskj. 250 ber vott um. Hins vegar vill hann fara nokkuð aðra leið, þ.e. að efla nú þegar iðnlánasjóð í stað þess að stofna sérstaklega til iðnaðarbanka. — Frá minni hl. iðnn. hefur einnig komið viðurkenning á því, að hér sé þörf umbóta og málið geti verið gagnlegt, að minnsta kosti ef S.Í.S. fær að vera með í stofnun bankans. Ég vildi strax á þessu stigi málsins, út af brtt. minni hl. iðnn., lesa hér upp bréf, sem mér barst frá bankanefnd iðnaðarins varðandi þetta mál og er á þessa lund:

„Reykjavík, 26. nóv. 1951.

Hr. form. iðnn. neðri deildar Alþingis.

Bankanefnd iðnaðarins hefur rætt till. frá minni hl. iðnn. Nd. um það, að S. Í. S. verði tryggt 11/2 millj. kr. af hlutafé væntanlegs iðnaðarbanka.

Bankanefndin er andvíg þessari till., vegna þess að hún lítur svo á, að samtök iðnaðarins í landinu eigi að vera aðilar að bankanum, en ekki óskyld samtök, þó að þau kunni að eiga einhverra hagsmuna að gæta við iðnaðinn.

S.Í.S. er fyrst og fremst innflutnings- og útflutningsaðili, en ekki iðnrekendasamtök, enda er iðnaðarfyrirtækjum, sem það rekur eða á hlut í, heimilt að ganga í Félag íslenzkra iðnrekenda.

Að vísu er ánægjulegt, ef fjársterkir aðilar vilja styrkja bankann og sýna þannig í verki, að þeir skilji og meti þýðingu hans, en bankanefnd iðnaðarins getur ekki á það fallizt, að ákveðið sé með lögum, að neinir hluthafar að bankanum verði utan samtaka iðnaðarins, aðrir en ríkið sjálft.

Virðingarfyllst,

F.h. bankanefndar iðnaðarins

Þorsteinn Sigurðsson,

Páll S. Pálsson.

Samþykkir famanrituðu:

F.h. Landssambands iðnaðarmanna

Helgi H. Eiríksson.

F.h. Félags íslenzkra iðnrekenda Kr. Jóh. Kristjánsson.“

Í þessum umræðum, sem hér hafa farið fram, hefur af sumum verið dregið í efa, að þörf væri á eða réttmætt að stofna sérstakan banka fyrir iðnaðinn, vegna þess að bankar þeir, sem fyrir væru, lánuðu alveg jöfnum höndum í allar atvinnugreinar, eins og hv. þm. N–Þ. (GG) komst að orði. Hann sagði, að hinir þrír bankar væru almennir viðskiptabankar og lánuðu til allra stétta, þannig að Búnaðarbankinn væri ekki fyrir landbúnaðinn og Útvegsbankinn væri ekki fyrir útveginn. Þetta kemur okkur spánskt fyrir sjónir. Ef við athugum Búnaðarbankalögin, þá stendur þar í 2. gr.: „Tilgangur bankans er að styðja landbúnaðinn og greiða fyrir fjármálaviðskiptum þeirra, er stunda landbúnaðarframleiðslu.“ Þetta er því tilgangur bankans og annar ekki. Hitt er rétt, að hann lánar eitthvað til annarra atvinnuvega, en hitt finnst mér ótrúlegt, að bankalögin hafi verið brotin, svo að hann láni ekki frekar til landbúnaðarins en til annarra atvinnuvega. Allir vita, að Búnaðarbankinn var stofnaður til að styðja landbúnaðinn, og hefur hann gegnt því hlutverki með prýði. Þegar frv. var lagt fram um Búnaðarbanka fyrir tveim áratugum síðan, þá fékk það góðar undirtektir og var samþ. Því virðist manni, að þegar í hlut á 1/3 hluti þjóðarinnar, sem óskar eftir að fá sinn eigin banka, þá ætti því að verða jafnvel tekið og Húnaðarbankanum á sínum tíma. Ég skal ekki fara að gera hér upp á milli atvinnuvega landsins, hvort þessi atvinnuvegur fær sinn bróðurpart af lánsfénu eða ekki. En víst er það, að iðnaðurinn hefur enga lánsstofnun, sem hefur því hlutverki að gegna að styðja hann og efla.

Ég hef fengið útdrátt úr yfirliti um, hvernig lánum Útvegsbankans og Landsbankans var háttað á árinu um mánaðamótin september–október. Þar hafði sjávarútvegurinn 432 millj., verzlunin 126 millj., iðnaðurinn 68 millj. og landbúnaðurinn 54 millj. Í þessum tveim bönkum, Útvegsbankanum og Landsbankanum, fær iðnaðurinn 68 millj., en landbúnaðurinn 54 millj., en auk þess fær landbúnaðurinn sín aðallán í Búnaðarbankanum, sem hefur það hlutverk með höndum að styrkja hann. Ég vil taka það fram, að verzlun og iðnaður samvinnufélaganna er ekki með í þessum tölum. Ég segi þetta vegna þess, að það hefur komið fram í ræðum eins eða tveggja þingmanna, að iðnaðurinn hafi yfir engu að kvarta.

Varðandi brtt. hv. þm. Borgf. vil ég undirstrika það, að ég fagna hinni miklu velvild hans og stórhug, er hann leggur til, að ríkissjóður leggi til 3.3 millj. kr. í iðnlánasjóð. 3 millj. eru gamalt fyrirheit, en auk þess, að iðnlánasjóður fái 800 þús. á árunum 1953–61, en 300 þús. eftir það. En þegar málið er athugað nánar, þá koma fram gallar og annmarkar á því að fara þessa leið. Í fyrsta lagi tel ég miður farið, ef Alþingi og ríkisstjórn ætla að slá á útrétta hönd Félags íslenzkra iðnrekenda og Landssambands iðnaðarmanna, sem ætla að leggja sjálf fram 11/2 millj. hvort í stofnkostnað. Mér finnst það fráleitt, ef Alþ. ætlar að hafna þessu og auka sjálfu sér útgjöld. Í öðru lagi er ætlunin, að þessi banki safni til sín sparifé eins og allir aðrir bankar gera.

Því hefur verið haldið fram, að stofnun þessa nýja banka muni ekki auka sparifjármyndun í landinu. Þetta kann að vera rétt, en er ekki víst. Sparifjármyndun í okkar þjóðfélagi er of lítil, og er það eitt af höfuðvandamálum okkar, hvernig eigi að auka hana. Það er vel hugsanlegt, að jafnfjölmenn stétt og iðnaðarmenn taki að auka sparifjármyndun innan sinnar stéttar að einhverju leyti, er þeir væru búnir að fá sinn eigin banka og sæju, að hann stæði og félli með því, hvernig tækist að afla fjár fyrir hann. Þetta er vel hugsanlegur möguleiki, og væri það til almennra hagsbóta fyrir þjóðfélagið í heild. Ég get ekki fullyrt þetta, en mér virðist þó, að áhuginn meðal iðnaðarmanna um þessi mál sé mikill. En þessi möguleiki er ekki fyrir hendi samkv. brtt., heldur aðelns iðnlánasjóður efldur, þar sem hann hefur ekki heimild til að hafa sparifjárdeild. — Hér hef ég getið tveggja annmarka á þeirri leið, er hv. þm. Borgf. leggur til að farin verði. — Auk þess lánar iðnlánasjóður ekki til allra framkvæmda iðnaðarins. Í l. segir: „Lán veitast iðnrekendum og iðjurekendum, sem erfitt eiga um lántöku á annan hátt, til kaupa á vélum og stærri áhöldum (ekki handverkfærum) og einnig til rekstrar, ef sérstaklega stendur á.“ M.ö.o., það er ekki gert ráð fyrir, að hann láni til verksmiðjurekstrar, nema sérstaklega standi á. Ef iðnlánasjóður á að koma að sama gagni, þá verður að gerbreyta 4. hvað við kemur 2. gr. Þar sem sagt er, að sjóðurinn megi afla sér fjár með útgáfu handhafavaxtabréfa, þá eru útgáfu þeirra sett mjög ströng takmörk. Það má aðeins með samþykki ráðh., og sjóðurinn má ekki skulda meira en sem svarar þreföldum höfuðstól á hverjum tíma. Ég hef orðið var við, að ýmsir menn hafa haldið, að efling iðnlánasjóðs gæti komið í stað bankastofnunar. Ég vænti þess, að nú sé hv. þm. það ljóst af þeim rökum, sem ég hef dregið fram, að það er ekki.

Meginástæðan, sem fram hefur verið borin fyrir því að fresta afgreiðslu málsins, er sú, að mál þetta komi inn á starfssvið bankamálanefndar, en hún situr nú að störfum, og sé ekki tímabært að setja l. um þetta efni, fyrr en hún hefur lokið störfum. Eftir þeim upplýsingum, sem ég hef fengið um mál þetta, þá mótmæli ég því, að þetta sé notað sem ástæða fyrir frestun málsins, enda vita það allir, að bankamálanefnd hefur fyrst og fremst því hlutverki að gegna að athuga almenna bankalöggjöf og hvort hyggilegt muni vera að stofna seðlabanka. Þetta hefur svo iðnaðar- og bankamálaráðh. staðfest. Ég verð að segja, að með allri virðingu fyrir hinni ágætu bankamálanefnd, — en í henni eiga sæti tveir þm., sem hér hafa tekið til máls, þá legg ég mest upp úr því, hvað sá maður hefur um þetta að segja, er skipaði n., en það er iðnaðar- og bankamálarh., og það hefur verið og er hans hlutverk að segja yfir þessari nefnd.

Ég ætla, að það sé svo ekki fleira, sem ég þarf að segja að svo komnu máli, en ég vil eindregið beina þeirri áskorun til þingsins, að frv. verði samþykkt.