10.12.1951
Efri deild: 40. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 958 í B-deild Alþingistíðinda. (1481)
83. mál, Iðnaðarbanki Íslands hf
Jóhann Jósefsson:
Herra forseti. Vegna þess, hve 7. dagskrármálið hefur verið oft á dagskrá og ekki hefur verið komið að því eða það rætt, þá leyfi ég mér að spyrja hæstv. forseta, hvort málið verði á dagskrá næsta fundar d. og hvort það verði þá tekið fyrir til umr. Ég er ekki á móti því, að málið verði ekki tekið til umr. nú, þar sem nú er orðið mjög áliðið kvölds, en þar sem kvöldfundur hafði verið boðaður og málið var á dagskrá, bjóst ég við, að það yrði tekið fyrir til umræðu nú á þessum fundi deildarinnar.