11.12.1951
Efri deild: 41. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 959 í B-deild Alþingistíðinda. (1486)

83. mál, Iðnaðarbanki Íslands hf

Steingrímur Aðalsteinsson:

Herra forseti. Ég þarf ekki að fara mörgum orðum um þetta mál, því að eins og fram kemur í nál., sem fyrir liggur, og hv. frsm. hefur tekið fram, þá er ég sammála um meginefni málsins, þ.e.a.s. sammála um að setja l. um stofnun iðnaðarbanka. Það, sem ég vil hins vegar taka fram um þetta mál, er það, að ég tel, að þetta hlutafé, sem ætlazt er til, að bankinn verði stofnaður með, sé of lítið, og að það sé nauðsynlegt til þess að afla bankanum þegar í upphafi þess trausts, sem honum er nauðsynlegt, til þess að hann geti aflað sér starfsfjár, að þetta hlutafé verði nokkru meira en mælt er fyrir í frv. Ég hef þess vegna lagt til, að hlutaféð yrði aukið og ákvæðin yrðu þannig, að í staðinn fyrir 61/2 millj., sem nú stendur í frv., kæmu 11 millj. og í staðinn fyrir að ríkissjóður leggi fram 3 millj., þá leggi hann fram 5 millj. Síðan geri ég ráð fyrir, að þeir aðilar, sem samkv. 3. gr. er ætlað að safna og leggja til 11/2 millj. hvor um sig, þ.e.a.s. Félag íslenzkra iðnrekenda og Landssamband iðnaðarmanna, safni og leggi fram hvor um sig 21/2 millj. og svo loks, að í staðinn fyrir 1/2 millj., sem ætlazt er til að verði aflað samkvæmt opinberu útboði, komi l milljón, þannig að í staðinn fyrir 61/2 milljón komi 11 milljónir. — Ég sé ekki ástæðu til að láta þessari till. fylgja neinar sérstakar skýringar, þetta liggur alveg ljóst fyrir, og hv. dm. er auðvelt að átta sig á því, þar sem í rauninni er aðeins um þetta eina atriði að ræða, að hlutaféð hækki úr 61/2 millj. í 11 millj., og ástæðan er sú, sem ég hef þegar getið um, að ég tel, að með því væri bankanum, um leið og hann er stofnaður, aflað meira trausts og þar með meiri möguleika til að afla sér frekara rekstrarfjár, þ.e.a.s. með því að draga til sín sparifé, sem menn mundu þá frekar treysta honum til að ávaxta, því meira sem hlutafé hans yrði, því að eins og gefur að skilja, þá er hlutaféð fyrst og fremst áhættufé bankans, og ef einhver óhöpp koma fyrir, þá er það fyrst og fremst það, sem mætir óhöppunum, og það er því tryggara sem féð er meira, sem stendur á bak við bankann.

Hv. frsm. tók fram, að honum mundi persónulega ljúft að mæla með slíkri till. sem þessari og styðja að því, að hlutafé bankans yrði meira, en hann teldi ekki, að hægt væri að fá það samþ. hér í þinginu, og ef það væri samþ. hér í d., þá gæti það kannske orðið til þess, að málið strandaði í Nd. Um þetta er að vísu ekki hægt að fullyrða neitt, en að sjálfsögðu fer það þó eftir því, hversu mikinn áhuga Alþ. hefur fyrir því, að slíkt mál sem þetta nái fram að ganga, því að ef meiri hl. bings hefur nægilegan áhuga á þessu máll. þá er líka tækifæri fyrir Alþ. að afgr. málið, jafnvel þó að gerð sé á því þessi breyt., en það þyrfti hins vegar að ganga til Nd. aftur. Það er nú hv. þm. kunnugt, að jafnvel þó að ætti að ljúka þingi fyrir jól og ýmis önnur mál kunni að kalla að til að afgreiða, þá er það ekki óvenjulegt, að mál séu afgr. í skyndi undir þinglok, og sem sagt, ef áhugi er fyrir málinu, þá hlýtur það að takast þrátt fyrir það, þó að slík breyt. yrði á því gerð. Það ætti þess vegna ekki að þurfa að verða málinu að falli, ef menn á annað borð vildu fallast á nauðsyn þess, að hlutafé bankans hækkaði frá því, sem nú er ákveðið í frv. Ég vil því vænta þess, að það séu fleiri en hv. þm. Vestm., sem vilja styðja að því, og þá mætti þetta vel takast.