11.12.1951
Efri deild: 41. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 964 í B-deild Alþingistíðinda. (1489)

83. mál, Iðnaðarbanki Íslands hf

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Það var út af því, sem hv. I. þm. N-M. óskaði, að n. rannsakaði málið að nýju. Það er misskilningur, að málið hafi ekki verið rannsakað; það var rannsakað í iðnn. hv. Nd. nú.

Í sambandi við það, sem þessi hv. þm. sagði um, að það vantaði upplýsingar frá bönkunum, þá hefur Alþ. þá sorglegu reynslu, að þeir hafa varla virt það svaravert. Annaðhvort hafa þeir alls ekki veitt þær upplýsingar, sem um hefur verið beðið, eða þá gert það svo seint. að þær hafa ekki komið að gagni. T.d. hefur það komið fyrir, svo að ég man eftir, að Alþ. óskaði svars innan hálfs mánaðar, en það dróst í 7 eða 8 vikur, að svarið bærist, svo að ég tel mjög óskynsamlegt að láta málið daga uppi hér á Alþ. vegna tregðu bankanna til að svara. Auk þess virtist hv. 1. þm. N-M. hafa hér tölur meðferðis, að minnsta kosti fullyrti hann ýmislegt varðandi útlán bankanna. Annars voru þessar upplýsingar hv. þm. og raunar öll ummæli hans í þessu máli eingöngu gerð í því augnamiði að tefja fyrir framgangi þess. — Þessi hv. þm. spurði, hvaðan fé ætti að koma í þennan banka. En hvaðan kom fé í Búnaðarbankann, og hvaðan kemur það fé, sem hann notar? Hv. þm, Seyðf. spurði, hvað við ættum að gera við fjórða peningalausa bankann. En hvers vegna var Íslandsbanki reistur við? Var ekki tilgangurinn með stofnun Búnaðarbankans einmitt það að „egna hagsmunamálum landbúnaðarins, þegar lítið var um fé? Og var ekki sami tilgangurinn á sínum tíma með stofnun Fiskveiðasjóðs og Fiskimálasjóðs?

Ég verð að segja það, að mér finnst það bera vott um furðanlega lítinn skilning hjá vini mínum, hv. þm. Seyðf., þegar hann heldur því fram, að hann hafi meira vit á þessum málum en iðnaðarmenn. Iðnaðarmenn vilja fá þennan banka vegna þess, að þeim er nær ómögulegt að fá lán hjá þeim bönkum, sem fyrir eru, og iðnaðurinn hefur mjög orðið útundan í lánastarfsemi bankanna, en það er mesta fjarstæða að halda því fram, að bankarnir fari að segja upp lánum til iðnaðarins, ef iðnaðarmenn stofni sinn eigin banka.

Hv. 1. þm. N-M. sagði, að n. hefði ekki gefið hv. 8. þm. Reykv. (RÞ) tíma til þess að mynda sér skoðun um málið. Ég vil mótmæla þessu. Hún hafði alveg jafngott tækifæri og aðrir hv. nm. til þess að taka afstöðu til málsins, en það má ef til vill skilja þessi ummæli hv. 1. þm. N-M. þannig, að hún geti ekki myndað sér skoðanir, nema fara áður í eldhús til hans. Það þarf ekki að saka n. um þetta atriði. Hún vissi, að það að fresta málinn var sama sem að drepa það. Henni var kunnugt um fjandskap hv. þm. (PZ) til málsins og vissi, að tilgangur hans með því að fara fram á frestun var sá einn að drepa málið. Hann getur svo gefið hv. 8. þm. Reykv. sínar fyrirskipanir svona almennt, ef hann vill. Ég vil því leggja til, eins og hv. þm. Vestm., að málíð verði samþ. óbreytt.

Ég vil spyrja hv. 4. landsk., hvort hann vilji ekki taka sína till. til baka. Það er nægur tími til þess að koma þessari brtt. fram. Þar sem svo mjög er liðið á þingtímann, er málið í hættu, ef breyting er gerð á því og það þarf að fara aftur til hv. Nd. Það yrði aðeins vatn á myllu framsóknarmanna, sem alltaf hafa sýnt iðnaðinum fjandskap, og það gæti leitt til þess, að þeim tækist að koma málinu fyrir kattarnef. (StgrA: Það er engin hætta, ef það væru aðeins þeir.) Það hefur alltaf verið krabbi í þeirra blóði að vera á móti öllum velferðarmálum iðnaðarins.